Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
Oliver: Keflavík tilkynnti mér að ég væri laus
Glódís eftir sögulegan leik: Veit það nú ekki alveg
Karólína Lea: Ég er eins og einhver stolt mamma þegar ég sé hana
Linda Líf eftir fraumraunina: Geggjað að fyrsti landsleikurinn hafi verið sigur
Cecilía: Ég er vön þessu stundum úti
Thelma Karen: Vantaði helminginn af vinkonunum
Alexandra: Alltaf gaman í þau fáu skipti sem það gerist
Steini vonsvikinn: Þetta er að gerast annars staðar
Sandra María: Hún getur allt sem hún vill
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
banner
   þri 03. mars 2026 20:37
Ívan Guðjón Baldursson
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Eimskip
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorsteinn Halldórsson svaraði spurningum eftir 3-0 tap Íslands gegn heimsmeisturum Spánar í undankeppni fyrir HM í Brasilíu á næsta ári.

Lestu um leikinn: Spánn 3 -  0 Ísland

Ísland er í afar erfiðum undanriðli sem inniheldur einnig evrópumeistara Englands og Úkraínu. Allar fjórar þjóðirnar halda þó áfram í undankeppninni eftir að riðlinum lýkur.

„Það er alltaf fúlt að tapa en við vorum að spila á móti frábærum andstæðingum. Við áttum alveg fínan leik á köflum en þær eru bara ógeðslegar góðar í þröngu spili, stuttu spili, góðar hreyfingar, góðar að búa til yfirtölu. Við reyndum að díla við það en ef það slokknar á þér í eina sekúndu í þessum hreyfingum sem eru þarna í kringum vítateigshornin þá er erfitt að eiga við þær og það er kannski það sem varð okkur aðeins að falli," svaraði Steini, sem telur lærdómsríkt að spila gegn svona sterku liði.

„Þær voru á sínum degi, það var ákafi í þeim og nokkrir leikmenn sem voru að reyna að sanna sig. Það var meiri ákafi í pressu frá þeim en verið hefur, þær voru í aðeins rólegri pressu áður en núna var mikill ákafi í þeim. Þær spiluðu þetta af krafti og mér fannst fyrri hálfleikur allt í lagi, hann var fínn, en þetta fjaraði svo út hjá okkur. Við hefðum líka alveg viljað skora þarna í lokin."

Steini snéri sér svo að umdeildu opnunarmarki leiksins, þar sem Rusta Emanuela dómari hefði mátt stöðva leikinn vegna augljósra höfuðmeiðsla en gerði ekki. Claudia Pina skoraði fyrsta mark leiksins beint í kjölfarið, eftir að varnarlína Íslands missti einbeitinguna.

„Maður er ekki endilega sáttur með fyrsta markið og aðdragandann að því, þegar það er höfuðhögg og samkvæmt reglum á að stoppa leikinn. En svona er þetta, svo fór sem fór. Markmiðin okkar eru ennþá skýr, það breytist ekki við þennan leik."

Ísland heimsækir stórþjóð Englands til Nottingham á laugardaginn og talaði Steini um mikilvægi þess að halda þéttri vörn í þeim slag. Hann hrósaði einnig Ídu Marín Hermannsdóttur fyrir sitt framlag í dag en hún kom inn í byrjunarliðið fyrir Alexöndru Jóhannsdóttur sem er að glíma við meiðsli.

   03.03.2026 19:57
Undankeppni HM: Hetjuleg barátta gegn heimsmeisturunum

Slapp
banner