Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
   sun 03. maí 2026 15:10
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið ÍBV og Breiðabliks: Linta skiptir um markmann - Höskuldur byrjar
Milan Tomic er í byrjunarliði ÍBV en Marcel Zapytowski á bekknum.
Milan Tomic er í byrjunarliði ÍBV en Marcel Zapytowski á bekknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Höskuldur Gunnlaugsson.
Höskuldur Gunnlaugsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV og Breiðablik mætast á Hásteinsvelli í 5. umferð Bestu deildarinnar. Leikurinn hefst 16:00.

Eyjamenn eru með eitt stig í deildinni og fengið skelli í tveimur síðustu leikjum. Breiðablik er ósigrað í Bestu deildinni en liðið vann 4-0 sigur gegn nýliðum Þórs í fjórðu umferðinni.

Lestu um leikinn: ÍBV 1 -  1 Breiðablik

Eyjamenn gera markvarðaskipti frá 5-1 tapinu gegn Fram. Færeyingurinn Ari i Haraldstovu Petersen sem kom frá KÍ Klaksvík í vetur ver markið en Marcel Zapytowski er bekkjaður.

Aleksander Linta þjálfari ÍBV gerir alls fjórar breytingar en Liam Daði Jeffs, Halldór Jón Sigurður Þórðarson og Vicente Valor koma allir inn í byrjunarliðið.

Breiðabliksliðið var ferjað til Vestmannaeyja með þyrlu en Ólafur Ingi Skúlason gerir tvær breytingar. Fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson var ekki með gegn Þór vegna veikinda en hann og Anton Logi Lúðvíksson koma inn í byrjunarliðið. Valgeir Valgeirsson og Kristinn Steindórsson setjast á bekkinn.

Byrjunarlið ÍBV:
33. Ari i Haraldstovu Petersen (m)
2. Sigurður Arnar Magnússon (f)
4. Mattias Edeland
6. Milan Tomic
7. Sesar Örn Harðarson
9. Liam Daði Jeffs
23. Arnór Ingi Kristinsson
26. Felix Örn Friðriksson
27. Róbert Elís Hlynsson
30. Vicente Valor
80. Halldór Jón Sigurður Þórðarson

Byrjunarlið Breiðablik:
1. Anton Ari Einarsson (m)
4. Ásgeir Helgi Orrason
5. Ívar Örn Árnason
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
8. Viktor Karl Einarsson
9. Óli Valur Ómarsson
13. Anton Logi Lúðvíksson
15. Ágúst Orri Þorsteinsson
18. Davíð Ingvarsson
23. Kristófer Ingi Kristinsson
30. Andri Rafn Yeoman
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 5 5 0 0 22 - 9 +13 15
2.    Víkingur R. 4 3 1 0 10 - 3 +7 10
3.    Valur 5 3 0 2 11 - 9 +2 9
4.    Breiðablik 4 2 2 0 6 - 1 +5 8
5.    Fram 4 2 1 1 11 - 6 +5 7
6.    Stjarnan 4 2 0 2 10 - 11 -1 6
7.    Þór 5 2 0 3 5 - 11 -6 6
8.    Keflavík 4 1 1 2 5 - 7 -2 4
9.    KA 5 1 1 3 5 - 8 -3 4
10.    ÍA 4 0 2 2 4 - 9 -5 2
11.    FH 4 0 1 3 5 - 11 -6 1
12.    ÍBV 4 0 1 3 5 - 14 -9 1
Slapp
banner
banner
banner