Wijnaldum aftur í úrvalsdeildina? - Everton fylgist með Tchaouna - Bastoni ekki til Barca - Gordon efstur á óskalistanum
Kayla Rollins: Vona að þetta heldur svona áfram
Ian Jeffs: Ekki hægt að bera Breiðablik í fyrra saman við Breiðablik í ár
Jóhann Kristinn: Gæti ekki verið stoltari af þeim eins og einmitt núna
Gekk vel í prófi í morgun og skoraði tvö um kvöldið
Ver Úlfu fram í rauðan dauðann: Hefði þá átt að vera rautt á báðar
„Sá tækifæri á Íslandi og hugsaði núna eða aldrei"
Sá olnbogaskot metra frá sér og vildi rautt: Fyrir vikið verð ég reiður
Jasmín Erla: Misstirðu af því?
Hildur María: Þetta er bara upphafið á góðu rönni
Anton Ingi: Mættum strax grimmar í byrjun og alveg til enda
„Einn af þessum fótboltaleikjum þar sem maður hefði viljað tíu mínútur í viðbót"
Gylfi Tryggva: Þetta er eins og í boxbardaganum
Bestur í Mjólkurbikarnum - Kominn tími á bikarævintýri í Mosfellsbæ
Rúnar Páll: Við hefðum getað skorað fleiri mörk
Fékk rautt í hálfleik: Mér fannst ég ekki vera of aggressívur
Jói Kalli tekur ábyrgð: Eitt að tapa leik en annað á þennan hátt
Nenad eftir sigur á KA: Auðvitað okkar besti leikur
Haddi ósáttur: Nenntum ekki að leggja okkur fram
Heimir Guðjóns maður leiksins: Það er geggjaður matur þannig ég hlakka til
„Er með Þórshjarta þannig það er gaman að vinna KA"
   sun 03. maí 2026 21:28
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Jói Kalli: Gríðarlega svekktur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Gríðarlega svekktur hvernig þessi leikur þróaðist. Við lögðum ansi mikla vinnu á okkur í fyrri hálfleik og komum okkur í góða stöðu. Komast þrjú eitt yfir á móti Fram á heimavelli við ansi krefjandi aðstæður. Það var erfitt að halda boltanum á jörðinni og spila eitthvern fallegan fótbolta en við gerðum ansi vel að komast í þessa stöðu, við vorum staðráðnir í því að fylgja því eftir í seinni hálfleik en því miður var það ekki raunin" sagði Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH eftir tap gegn Fram á heimavelli.


Lestu um leikinn: FH 3 -  4 Fram

Ertu ánægður með frammistöðuna í fyrri hálfleik?

„Já já. Að mörgu leyti, það var langt í frá að vera eitthvað fullkomið. Við gerðum ansi margt vel, auðvitað komust Framararnir í einhver færi, þeir eru góðir í að spila þetta leikkerfi sem þeir spila, 5-3-2. Við vissum kannski miðað við aðstæður að þeir yrðu meira direct og myndu sparka meira löngu boltum fram á. Við ætluðum að vera í góðri stöðu til þess að leysa það, gekk ekki alveg hundrað prósent upp í fyrri hálfleik en við gerðum það að mörgu leyti vel. Þegar leið á seinni hálfleikinn þá gekk það því miður ekki upp, krossar lengst utan af kanti og bara langir boltar fram á við, skiptingar frá hægri til vinstri. Við þokkalega mannaðir til baka í flestum af þessum stöðum en náum samt ekki að stoppa þá í að komast svona auðveldlega í átt að markinu hjá okkur."

Voru öll mörkin of auðveld?

„Já, klárt mál. Fyrirgjöfin hjá Fred einhvers staðar lengst utan af kanti og við erum í ágætis stöðu til þess að díla við það. En því miður þá náum við ekki. Það á ekki að vera hægt að krossa boltanum þarna og fá svo frítt skot inn í vítateig. Þannig að við vorum ragir, og að verja forystu í stað þess að halda áfram og gera það sem við vorum að gera í fyrri hálfleik."

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan


Slapp
banner
banner
banner