Kristófer Ingi Kristinsson átti frábæran leik þegar Breiðablik lagði ÍBV í Eyjum í dag. Fótbolti.net ræddi við hann eftir leikinn.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 2 Breiðablik
„ÍBV gaf okkur hörkuleik, ekki sjálfgefið að taka þrjú stig, þetta eru alltaf erfiðir leikir hérna. Þetta var aðeins erfiðara en við höfðum vonast eftir en gott að ná þremur stigum," sagði Kristófer.
Anton Ari Einarsson gerði sig sekann um slæm mistök strax í upphafi leiks þegar ÍBV komst yfir eftir 15 sekúndur. Hann átti flottan leik eftir það og Kristófer Ingi skoraði og lagði upp.
„Anton er örugglega búinn að vera besti maðurinn okkar í sumar. Hann hjálpaði okkur rosalega í þessum leik. Ég er búinn að vera mikið meiddur og hef ekki náð almennilegum takt. Það er geggjað að ná nokkrum leikjum í röð, mark og stoðsending í dag, mér líður mjög vel," sagði Kristófer.
Breiðablik er í 2. sæti eins og er, fjórum stigum á eftir KR sem er með fullt hús stiga.
„Þeir eru heitir núna, við viljum stefna á að vera í þessari baráttu. Þá þurfum við að vinna sérstaklega þessa leiki sem við vitum að eru erfiðir," sagði Kristófer.























