Wijnaldum aftur í úrvalsdeildina? - Everton fylgist með Tchaouna - Bastoni ekki til Barca - Gordon efstur á óskalistanum
Kayla Rollins: Vona að þetta heldur svona áfram
Ian Jeffs: Ekki hægt að bera Breiðablik í fyrra saman við Breiðablik í ár
Jóhann Kristinn: Gæti ekki verið stoltari af þeim eins og einmitt núna
Gekk vel í prófi í morgun og skoraði tvö um kvöldið
Ver Úlfu fram í rauðan dauðann: Hefði þá átt að vera rautt á báðar
„Sá tækifæri á Íslandi og hugsaði núna eða aldrei"
Sá olnbogaskot metra frá sér og vildi rautt: Fyrir vikið verð ég reiður
Jasmín Erla: Misstirðu af því?
Hildur María: Þetta er bara upphafið á góðu rönni
Anton Ingi: Mættum strax grimmar í byrjun og alveg til enda
„Einn af þessum fótboltaleikjum þar sem maður hefði viljað tíu mínútur í viðbót"
Gylfi Tryggva: Þetta er eins og í boxbardaganum
Bestur í Mjólkurbikarnum - Kominn tími á bikarævintýri í Mosfellsbæ
Rúnar Páll: Við hefðum getað skorað fleiri mörk
Fékk rautt í hálfleik: Mér fannst ég ekki vera of aggressívur
Jói Kalli tekur ábyrgð: Eitt að tapa leik en annað á þennan hátt
Nenad eftir sigur á KA: Auðvitað okkar besti leikur
Haddi ósáttur: Nenntum ekki að leggja okkur fram
Heimir Guðjóns maður leiksins: Það er geggjaður matur þannig ég hlakka til
„Er með Þórshjarta þannig það er gaman að vinna KA"
   sun 03. maí 2026 21:55
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Rúnar Kristins: Ekki fallegur fótbolti en ég er með marga klóka menn
Mynd: Fótbolti.net - J.L.

„Mér fannst frammistaðan upp og niður. Auðvitað fyrri hálfleikur, lendum þrjú eitt undir rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og maður hefði viljað frekar fara tvö eitt en þrjú eitt inn í klefa. Minnugur þess hvað gerðist hér áður, þá höfum við snúið þrjú núll fyrir tveimur árum í þrjú þrjú. í dag snerum við þrjú eitt í fjögur þrjú sigur og við höfum trú á því: Við höfðum smá vind i bakið í síðari hálfleik og þá auðveldara að þrýsta þeim aðeins neðar og skapa hættur. Við vorum öflugir í sóknarleiknum í seinni hálfleik en þetta var ekki fallegur fótbolti. Þetta var ekki fallegur fótboltaleikur en engu að síður þá held ég að allir séu glaðir að sjá sjö mörk í leiknum sagði Rúnar Kristinsson þjálfari Fram eftir sjö marka úti sigur gegn FH á Kaplakrika.


Lestu um leikinn: FH 3 -  4 Fram

Virkaði planið í seinni hálfleik?

„Já. Ég meina planið í seinni hálfleik var ekkert ólíkt því sem planið var í fyrri hálfleik, það var bara vindurinn sem hjálpaði okkur að koma í betri stöður og við tókum aðeins meiri sjensa í að þrýsta Kennie hærra upp völlinn og breyttum ekki miklu en ég er bara með marga klóka fótboltamenn þarna inni sem skilja hvar eru svæði og hvar er best að koma boltanum fyrir markið og hvar er best að sækja. við reynum að leiðbeina þeim eftir bestu getu á hliðarlínunni ef við þurfum að laga eitthvað."

Voru mörkin sem þið fenguð á ykkur klaufaleg?

„Alltaf þegar maður fær á sig mörk, eru þau öll klaufaleg. Nei nei Kjartan Kári frábær í sinni stöðu, fyrsta markið þeirra þá fær hann bara fyrirgjöf sem hann elskar að gera og þeir eru með Flóka og Úlf inn í boxinu. Það verður eitthvað klafs þarna hvort að það sé sjálfsmark eða ekki, veit ég ekki. En þeir koma okkur í erfiða stöðu með því að eiga þessa frábæra fyrirgjöf. Ég man ekki hvernig annað markið var en þriðja allaveganna hornspyrna á fjær sem er skölluð aftur inn í teiginn og þa er hún flickuð inn í markið."


Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan


Slapp
banner
banner