Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
   sun 03. maí 2026 17:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Slot ósáttur við VAR - „Þá vitum við hver útkoman verður fyrir Liverpool"
Mynd: EPA
Liverpool tapaði 3-2 gegn Man Utd á Old Trafford í hörku leik í dag.

Man Utd náði tveggja marka forystu en Liverpool jafnaði með tveimur mörkum snemma í seinni hálfleik. Kobbie Mainoo tryggði síðan sigur Man Utd.

„Við gátum ekki haldið styrkjum þeirra í skefjum. Við vissum hverjir styrkleikar þeirra eru, föst leikatriði og skyndisóknir. Maður verður að vera meðvitaður hvar við getum tapað boltanum gegn United. Þeir eru með marga hraða leikmenn, Bruno Fernandes særir þig í skyndisóknum og það gerðist í seinna markinu," sagði Arne Slot.

„Það býst enginn við því að við töpum þegar staðan er orðin 2-2. Kannski gera menn það miðað við þetta tímabil. Við höfum sýnt það oft á þessu tímabili að þegar við teljum að við getum unnið slökkvum við á okkur. Boltinn datt fyrir Mainoo og hann kláraði frábærlega."

Slot var ekki sáttur með fyrsta mark United sem Benjamin Sesko skoraði en boltinn virtist snerta fingurgómana á framherjanum.

„Ef það er snerting er hún ekki mikil. Þá er hægt að rökræða hvort það eigi að dæma markið af ef snertingin er svona lítil. Ef það er sterting á að dæma það af. Ég vil einbeita mér að öðru markinu, þar getum við gert betur," sagði Slot.

„Þegar við fáum á okkur mark og VAR skoðar það, þá vitum við öll hver útkoman verður fyrir Liverpool á þessu tímabili."
Slapp
banner
banner
banner