Fotbolti.net
03.06.15 - 22:30
Arnar Geir Halldórsson

Christian Fuchs til Leicester (Staðfest)

Nýr leikmaður Leicester

Nýr leikmaður Leicester

Canon

Mynd: Getty Images

Austurríski landsliðsmaðurinn Christian Fuchs mun leika með Leicester í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.
Fuchs kemur til liðsins frá Schalke í Þýskalandi þar sem hann hefur leikið frá árinu 2011. Hann gerir þriggja ára samning við Leicester.

„Það hefur alltaf verið draumur minn að spila í ensku úrvalsdeildinni og ég er ánægður með að sá draumur muni senn rætast. Leicester City er ný reynsla og spennandi tækifæri fyrir mig\", sagði Fuchs við undirskriftina.

Fuchs er 29 ára gamall vinstri bakvörður og kemur á frjálsri sölu til Leicester þar sem samningur hans við Schalke er að klárast.

Leicester tókst að halda sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni með frábærum lokaspretti. Liðið var lengi vel á botni deildarinnar en endaði að lokum í 14.sæti.

Heimild: Leicester City

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.