03.06.15 - 11:54
Elvar Geir Magnússon
Helgi Kolviðs tekur við SV Josko Ried (Staðfest)

Helgi er fyrrum landsliðsmaður Íslands.

Mynd: Getty Images

Helgi er fyrrum landsliðsmaður Íslands.

Mynd: Getty Images
Helgi Kolviðsson hefur tekið við þjálfun SV Josko Ried sem hafnaði í sjötta sæti austurrísku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð.
Helgi náði ekki að koma í veg fyrir fall Wiener Neustadt og hætti þjálfun liðsins eftir nýliðið tímabil.

Á heimasíðu SV Josko Ried segir að viðræður við Helga hafi gengið vel og hugmyndir hans smellpassi við hugmyndir félagsins.
Helgi hefur áður þjálfað SC Pfullendorf í Þýskalandi og Austria Lustenau í næstefstu deild í Austurríki.
„Maður er búinn að vera hérna úti í tæp tuttugu ár. Ég spilaði fyrst bæði í Austurríki og Þýskalandi og maður er ekkert að spá í að koma heim í dag þó að maður eigi aldrei að segja aldrei,\" sagði Helgi í viðtali við Fótbolta.net fyrr á þessu ári. Í því viðtali var hann beðinn um að lýsa styrkleika austurrísku úrvalsdeildarinnar.
„Þetta er svipað og næstefsta deild í Þýskalandi. Toppliðin eins og Salzburg, Rapid Vín, Sturm Graz gætu líklega haldið sér í neðri hlutanum í Bundesligunni. Það er ekkert svo mikill munur. Við æfum svipað og jafn mikið og liðin í Þýskalandi. Þar er bara meiri peningur og aðeins meiri gæði.\"