Fotbolti.net
03.06.15 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Michael Essien til Panathinaikos (Staðfest)

Michael Essien til Panathinaikos (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Miðjumaðurinn duglegi Michael Essien er búinn að skrifa undir samning við gríska félagið Panathinaikos eftir að samningur hans við AC Milan rann út.

Essien er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Grikkina og er þessi landsliðsmaður Gana spenntur fyrir framtíðinni.
Essien er 32 ára gamall og hefur leikið fyrir stórlið á borð við Chelsea, Real Madrid og Milan síðustu ár.

„Ég er mjög ánægður að vera kominn hingað og er spenntur fyrir framtíð minni hjá Panathinaikos,\" sagði Essien við vefsíðu félagsins.

„Ég hlakka til að hitta nýju liðsfélagana og vinna titla með liðinu. Stuðningsmennirnir tóku mjög vel á móti mér og ég vil endurborga ást þeirra þegar ég stíg á völlinn.\"

Heimild: FI

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.