Íslenska landsliðið æfði í dag á æfingasvæði Greuther Fürth í Þýskalandi.
Stelpurnar okkar eru á fullu í undirbúningi fyrir Evrópumótið sem er framundan. Þar er okkar lið í riðli með Belgíu, Frakklandi og Ítalíu.
Liðið dvelur í Herzogenaurach, heimabæ Adidas og Puma, og æfir að mestu í Fürth sem er í um 15 mínútna aksturfjarlægð. Æfingasvæðið er mjög flott enda ekki við öðru að búast hjá félagi sem var með lið í þýsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
Allir leikmenn liðsins tóku þátt á æfingunni í dag. Sif Atladóttir, leikmaður Selfoss, tók fyrri hlutann en hvíldi svo seinni hlutann. Annars voru allir leikmennirnir með allan tímann.
Fréttamaður Fótbolta.net fékk að vera viðstaddur æfinguna og birtist myndaveisla hér á síðunni í fyrramálið.
Athugasemdir