Fotbolti.net
21.09.26 - 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Steypustöðin

Sterkasta lið 19. umferðar - Skildu Reykjavíkurstórveldin eftir

FH vann dramatískan sigur á Stjörnunni.

FH vann dramatískan sigur á Stjörnunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Fyrstu umferð Bestu deild kvenna eftir að deildinni var skipt er lokið.

Toppliðin tvö, FH og Breiðablik, unnu bæði góða sigra. FH vann dramatískan sigur á Stjörnunni þar sem Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir var maður leiksins og skoraði sigurmarkið. Eva Marie Wirtz var öflug í vörn Stjörnunnar.

Þá vann Breiðablik 4-1 sigur á Grindavík/Njarðvík þar sem Agla María Albertsdóttir var allt í öllu. Þórdís Elva Ágústsdóttir lék einnig vel fyrir Blika.
Sterkasta lið 18. umferðar - 17 ára sex sinnum í liðinu
TENGT EFNI

Sterkasta lið 18. umferðar - 17 ára sex sinnum í liðinu



Í þriðja leiknum í efri hlutanum vann ÍBV 4-3 sigur gegn bikarmeisturum Þróttar. Fridrikka Marie Clementsen og Olga Sevcova voru bestar í liði ÍBV í þeim leik.

Í neðri hlutanum komst Þór/KA upp úr fallsæti með sigri gegn Val á Hlíðarenda og skildu Reykjavíkurstórveldin, Val og Víking, eftir. Arna Sif Ásgrímsdóttir reyndist sínum gömlu félögum erfið, Margrét Árnadóttir skoraði sigurmarkið og Alessandra Augur var öflug í markinu. Þá er Aðalsteinn Jóhann Friðriksson þjálfari umferðarinnar.

Víkingur og Valur eru í fallsæti, en Víkingar gerðu 2-2 jafntefli við Fram í tíðindamiklum leik. Þar voru Jasmín Erla Ingadóttir og Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir öflugar í Víkingsliðinu.
Agla María var frábær að venju.

Agla María var frábær að venju.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Olga Sevcova hefur verið drjúg fyrir ÍBV í sumar.

Olga Sevcova hefur verið drjúg fyrir ÍBV í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arna Sif hefur verið virkilega góð í sumar.

Arna Sif hefur verið virkilega góð í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir.

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.