21.09.26 - 15:20
Elvar Geir Magnússon
„Sjokkerandi og vonbrigði ef hann verður rekinn“

Martin O'Neill er í brasi.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Martin O'Neill er í brasi.

Mynd: EPA
Martin O'Neill, hinn 74 ára gamli stjóri Celtic í Glasgow, segir að hann muni nota landsleikjahléið til að stokka spilin og skoða hvað betur megi fara eftir tvo tapleiki í röð gegn erkifjendunum í Rangers.
Ofan á þessa tapleiki þá tapaði Celtic einnig gegn Ferencvaros í Evrópudeildinni en liðinu mistókst að komast í Meistaradeildina eftir 4-0 samanlagðan skell gegn LASK.
„Ég mun rýna í þessa leiki. Ég má alveg frá gagnrýni, það er alveg réttmætt að spyrja hvort ég geti snúið þessu við. Ég þarf að horfa á stóru myndina," sagði O'Neill í viðtali og gaf í skyn að hann væri að velta eigin stöðu fyrir sér.

TENGT EFNI
Unnu grannaslaginn í annað sinn á viku
O'Neill hafði lagt þjálfaramöppuna á hilluna en tók tvisvar við Celtic á síðasta tímabili þegar liðið var í vandræðum. Liðið vann á endanum Skotlandsmeistaratitilinn og bikarinn.
O'Neill vann sjö aðra titla með Celtic 2000-05. Paul Lambert sem var leikmaður hans á þeim tíma segir að það myndi ekki koma sér á óvart ef leiðir Celtic og O'Neill myndu skilja núna.
„Það kæmi mér ekki á óvart ef hann myndi sjálfur ganga frá borði. Það yrði sjokkerandi og vonbrigði ef hann yrði rekinn. Það er ekki langt síðan það var kallað eftir styttu af honum og það mega ekki vera of miklir öfgar. Liðið var í miklum vandræðum og hann náði að snúa því við. Hann á mikla inneign í bankanum, þeir geta ekki rekið hann," segir Lambert.