Fotbolti.net
21.09.26 - 12:00
Elvar Geir Magnússon

Xhaka fékk falsað Covid vottorð því hann treysti ekki bólusetningum

Xhaka hefur verið dreginn út úr landsliðinu vegna málsins.

Xhaka hefur verið dreginn út úr landsliðinu vegna málsins.

Canon

Mynd: EPA

Miðjumaðurinn Granit Xhaka hefur verið tekinn úr svissneska landsliðshópnum eftir að hann viðurkenndi að hafa falsað Covid bólusetningarvottorð árið 2022.

Xhaka er fyrirliði Sunderland en var á þessum tíma leikmaður Arsenal.
Xhaka hefur beðist afsökunar og játað mistök en hann verður yfirheyrður af saksóknaraembættinu í Luzern í næstu viku og þá kemur í ljós hvort ákæra verði lögð á lækni í borginni sem sakaður er um að hafa gefið út fjölda falsaðra vottorða.

Xhaka viðurkennir að hafa ákveðið að láta ekki bólusetja sig gegn veirunni á sínum tíma þar sem hann var með efasemdir um bólusetningar.

„Ég var með vantraust á bóluefnið og var hrjáður af ótta og óvissu. Í þessu ólgusama tilfinningaástandi fékk ég falsað bólusetningarvottorð í stað þess að játa efasemdir mínar. Í dag sé ég greinilega að þetta var ekki rétta leiðin. Þetta voru mistök og ég biðst afsökunar," segir Xhaka sem gæti átt yfir höfði sér sekt. Strangasta refsingin yrði fangelsisvist en litlar sem engar líkur eru á að það geti orðið niðurstaðan.

Þar sem Xhaka var með Arsenal árið 2022 hefur Sunderland sagt að félagið muni ekkert tjá sig um málið.

Xhaka, sem hefur spilað 152 landsleiki fyrir Sviss, mun nú missa af komandi leikjum liðsins í Þjóðadeildinni; tveimur gegn Norður-Makedóníu og einnig gegn Sviss og Slóveníu.
Hann lék með Arsenal þegar hann falsaði vottorðið.

Hann lék með Arsenal þegar hann falsaði vottorðið.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.