West Ham telur sig eiga 10 prósent möguleika á að semja við Jesse Lingard, leikmann Manchester United, í sumar.
Sky Sports greinir frá þessu en Lingard var í láni hjá West Ham í vetur og var virkilega góður með liðinu.
Lingard var lánaður til enska liðsins í janúar og hjálpaði því að enda í sjötta sæti úrvalsdeildarinnar.
Lingard er í plönum Ole Gunnar Solskjær þessa stundina og gæti spilað ákveðið hlutverk á Old Trafford í vetur.
West Ham var vongótt um að fá leikmanninn í byrjun sumars en telur líkurnar vera um 10 prósent þessa stundina.
Lingard verður væntanlega enginn fastamaður hjá Man Utd á næsta tímabili en félagið metur hann á 30 milljónir punda.
Athugasemdir