03.08.26 - 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu Kristal prjóna sig í gegn og skora mikilvægt mark gegn Freysa

Mynd: Sportsklubben Brann

Mynd: Sportsklubben Brann
Kristall Máni Ingason skoraði frábært mark í dramatískum 3-2 sigri Brann gegn Frey Alexanderssyni og lærisveinum hans í Rosenborg í gær.
Freyr var að stýra Rosenborg í fyrsta sinn gegn Brann en hann tók við Rosenborg í sumar eftir að hafa stýrt Brann frá janúar í fyrra.
Freyr var að stýra Rosenborg í fyrsta sinn gegn Brann en hann tók við Rosenborg í sumar eftir að hafa stýrt Brann frá janúar í fyrra.
Rosenborg var með 2-1 forystu þegar Kristall Máni fór illa með varnarmenn Rosneborg og skoraði úr þröngu færi og jafnaði metin. Sigurmark Brann kom þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.
Kristall kom inn á sem varamaður fyrir Eggert Aron Guðmundsson á 69. mínútu. Sævar Atli Magnússon kom inn á í blálokin. Brann er í 6. sæti með 22 stig eftir 16 leiki en Rosenborg er í 10. sæti með 18 stig eftir 15 leiki.