Fotbolti.net
03.11.26 - 23:25
Brynjar Ingi Erluson

Einkunnir úr Meistaradeildinni: Cunha stórkostlegur en Dalot skelfilegur

Cunha var bestur hjá United

Cunha var bestur hjá United

Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Matheus Cunha var maður leiksins í 3-2 endurkomusigri Manchester United á Roma í Meistaradeildinni í kvöld, en hér fyrir neðan má sjá einkunnir leikmanna nokkurra stórliða eftir leiki kvöldsins.
Meistaradeildin: Þungu fargi létt af Carrick og Man Utd - PSG skoraði sex
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Þungu fargi létt af Carrick og Man Utd - PSG skoraði sex

Manchester Evening News hefur birt einkunnir leikmanna Manchester United eftir sigurinn á Roma, en þar var Matheus Cunha bestur með 9 í einkunn. Brasilíumaðurinn skoraði tvennu í síðari hálfleik og tryggði liðinu sigurinn, en fékk þó rautt spjald undir lok leiksins.

Diogo Dalot var slakastur í liði United og sýndi enn og aftur mikinn kæruleysi í varnarleiknum. Hann fékk aðeins 3 í einkunn.

Einkunnir Man Utd: Lammens (7), Yoro (6), Maguire (6), Heaven (5), Dalot (3), Baleba (5), Mainoo (6), Fernandes (6), Diallo (5), Cunha (9), Mbeumo (6).
Varamenn: Tielemans (6), Martínez (6), Lacey (7), Mount (6), De Ligt (6).

Joao Gomes fékk verstu einkunn Aston Villa hjá Birmingham Mail eftir 3-0 tapið gegn Barcelona, eða aðeins 4. GOAL valdi hins vegar Raphinha besta leikmann Börsunga og gaf honum 9 í einkunn.

Einkunnir Aston Villa: Suzuki (5), Cash (6), Lindelöf (6), Torres (6), Maatsen (5), Kamara (6), Gomes (4), McGinn (6), Manzambi (6), Buendia (5), Jackson (6).
Varamenn: Barkley (6), Mbaye (6), Goretzka (6).

Einkunnir Barcelona: Garcia (8), Farinas (7), Cubarsi (7), Martin (7), Cancelo (8), Rodri (7), Pedri (7), Fermin (8), Yamal (8), Gordon (7), Raphinha (9).
Varamenn: Bernal (6), Gavi (6), Jesus (6), De Jong (6).

Fabian Ruiz og Vitinha voru efstir í einkunnagjöf GetFrenchFootball eftir 6-0 stórsigur Paris Saint-Germain á Villarreal, en báðir fengu þeir 8 í einkunn.

Miðillinn var þó nokkuð spar á háar einkunnir þrátt fyrir yfirburði PSG og sex marka sigur liðsins.

Einkunnir PSG: Safonov (6), Hernandez (6), Pacho (6), Zabarnyi (6), Hakimi (7), Ruiz (8), Vitinha (8), Neves (7), Doue (7), Mayulu (7), Akliouche (6).

Konrad Laimer var síðan besti leikmaður Bayern München í 2-0 sigrinum á Atlético Madríd. Hann fékk 9 í einkunn hjá GOAL, en alls fengu sjö aðrir leikmenn liðsins 8.

Einkunnir Bayern: Neuer (8), Laimer (9), Upamecano (8), Tah (8), Stanisic (7), Kimmich (8), Bischof (8), Karl (8), Olise (8), Davies (7), Kane (7).
Varamenn: Brown (7), Min-Jae (6).
Dalot fær falleinkunn

Dalot fær falleinkunn

Canon

Mynd: EPA

Raphinha var maður leiksins gegn Aston Villa

Raphinha var maður leiksins gegn Aston Villa

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.