03.11.26 - 18:12
Brynjar Ingi Erluson
Fjórtán ára handtekinn fyrir ógeðfellda hegðun - „Særir mig inn að hjartarótum“

Hér er Romelu Lukaku ásamt Lowery fyrir nokkrum árum

Mynd: EPA

Bradley fangaði hug og hjörtu fótboltaheimsins

Lögreglan á Englandi handtók 14 ára gamlan stuðningsmann Coventry City eftir að hann sýndi mynd af Bradley Lowery, sem lést eftir erfiða baráttu við krabbamein, í þeim tilgangi að ögra stuðningsmönnum Sunderland í leik liðanna um helgina.
Bradley lést árið 2017, en hann var mikill stuðningsmaður Sunderland og myndaði meðal annars sérstakt vinasamband við Jermain Defoe, fyrrum leikmann félagsins. Saga þeirra snerti hjörtu fótboltaáhugamanna um allan heim og varð Bradley mörgum eftirminnilegur áður en hann lést.
Um helgina reif ungur stuðningsmaður Coventry fram símann og sýndi mynd af Lowery til að hæðast að dauða hans og ögra stuðningsmönnum Sunderland.
Coventry hóf rannsókn á málinu og í kjölfarið gaf drengurinn sig fram við lögreglu, þar sem hann var handtekinn en síðar látinn laus eftir yfirheyrslu.
Móðir Bradley sendi frá sér tilfinningaþrungna yfirlýsingu vegna málsins.
„Svo stór hluti af stuttri ævi Bradley fór í að berjast við krabbamein og gangast undir meðferðir sem ekkert barn ætti nokkurn tíma að þurfa að ganga í gegnum. Að sjá fallegu minninguna um hann notaða á svona grimman hátt særir mig inn að hjartarótum.“
„Fallegi strákurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást, ekki hatri,“ sagði hún enn fremur.
Hún bað þó fólk sérstaklega um að beina ekki hatri að unglingspiltinum, heldur vonaðist hún til þess að hann myndi læra af mistökum sínum.

What is wrong with some fans! ???? this little scumbag Coventry fan instead of giving stick to the opposition the normal way, he whips out a photo of Bradley Lowery! ????
— Proper Football (@ProperFootball8) October 31, 2026
Got no words for fans who do things like this! He isn't the first and wont be the last.
Wouldn't be so smug if it was a member of his own family! Let's hope good Coventry fans call him out and im sure they will.
#Coventry #coventrycity #CCFC #PUSB #SAFC #Sunderland #hawaythelads #EPL #PremierLeague #football #Bradleylowery