Fotbolti.net
03.11.26 - 19:50
Brynjar Ingi Erluson

Carrick um Martínez: Þurfum að taka ákvarðanir

Martínez er á bekknum

Martínez er á bekknum

Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Michael Carrick, stjóri Manchester United, segir enga sérstaka ástæðu liggja að baki þeirri ákvörðun að hafa Lisandro Martínez á varamannabekknum gegn Roma í Meistaradeildinni í kvöld.
Byrjunarliðin í Meistaradeildinni: Mainoo byrjar en Martínez á bekknum
TENGT EFNI

Byrjunarliðin í Meistaradeildinni: Mainoo byrjar en Martínez á bekknum

Martínez fékk á sig vítaspyrnu og var rekinn af velli í 2-0 tapinu gegn Chelsea um helgina, en hann hefur nú misst sæti sitt í byrjunarliðinu og byrjar á varamannabekknum.

Ayden Heaven kemur inn í hans stað, en Carrick var spurður út í þá ákvörðun fyrir leikinn.

„Við verðum að velja lið. Við erum með góðan leikmannahóp og þurfum að taka ákvarðanir. Við höfum gert eina eða tvær breytingar á undanförnum vikum og ákváðum að stilla þessu liði upp í kvöld,“ sagði Carrick.

Carlos Baleba og Kobbie Mainoo verða saman á miðjunni og er Carrick spenntur að sjá hvernig þeir ná saman.

„Við erum með marga mjög góða miðjumenn og getum stillt þeim upp á mismunandi vegu eftir því hvaða styrkleika við viljum nýta. Andrey og Carlos hafa spilað saman að undanförnu, en nú er Kobbie klár og okkur fannst þetta rétti tíminn til að koma honum aftur inn í liðið.“

„Miðað við þá eiginleika sem þeir búa yfir ættu þeir að geta spilað vel saman og ég hlakka til að sjá þá í kvöld,“
sagði hann ennfremur.
Carrick er spenntur að sjá Mainoo með Baleba

Carrick er spenntur að sjá Mainoo með Baleba

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.