03.11.26 - 18:01
Brynjar Ingi Erluson
Gríðarleg sorg á Tenerife - „Lífið getur stundum slegið mann harkalega í andlitið“

Fólk hefur mætt með blóm og kerti til að syrgja framherjann

Mynd: EPA

Jesus de Miguel lést eftir þungt högg sem hann fékk í leik gegn Andorra í gær

Rayo Garcia, eigandi Tenerife, og Felipe Minambres, forseti félagsins, segja mikla sorg ríkja á Tenerife eftir fráfall Jesus de Miguel.

TENGT EFNI
Lokar samfélagsmiðlum sínum eftir að hafa verið úthrópaður morðingi
De Miguel lést á sjúkrahúsi í morgun eftir að hafa fengið þungt högg í brjóstið í leik gegn Andorra í gær.
Jesus Owono, markvörður Andorra, kom af miklum krafti út á móti De Miguel þegar hann var að sleppa í gegn og rak hnéð í brjóst hans. De Miguel meiddist alvarlega við höggið og fór í kjölfarið í hjartastopp.
Samkvæmt spænskum fjölmiðlum tók rúmar tíu mínútur að endurlífga hann. Hann var í fyrstu sagður í stöðugu ástandi á sjúkrahúsinu, en heilsu hans hrakaði hratt og var hann úrskurðaður látinn í morgun.
Mikil sorg ríkir nú í samfélaginu á Tenerife, en Garcia og Minambres ræddu við fjölmiðla um fráfall hans og næstu skref félagsins.
„Fyrirgefið okkur að hafa ekki veitt meiri upplýsingar, en við stöndum frammi fyrir fordæmalausum aðstæðum sem við höfum aldrei áður þurft að takast á við. Við erum gjörsamlega niðurbrotnir. Fótboltasamfélagið á Tenerife syrgir og stundum skiptir engu hversu mikið maður reynir að skilja það sem hefur gerst. Það er einfaldlega ótrúlega erfitt að sætta sig við þetta.“
„Fyrir hönd fjölskyldunnar vil ég þakka öllum fyrir stuðninginn. Á morgun eða fimmtudag vonumst við til að fá leyfi til að flytja hann til Madrídar, samkvæmt óskum fjölskyldunnar. Þaðan verður farið til Navahermosa í Toledo, þar sem leikmenn aðalliðsins og stjórn félagsins munu geta vottað honum virðingu sína og kvatt hann í hinsta sinn.“
„Á laugardaginn viljum við síðan kalla saman alla stuðningsmennina og íbúa eyjunnar á Heliodoro klukkan sex um kvöldið. Þar ætlum við að kveðja hann saman. Við munum standa saman og takast á við þetta saman.“
„Lífið getur stundum slegið mann harkalega í andlitið. Þetta hefur verið hræðilegt ár fyrir þjóðina á svo margan hátt, en ég trúi því að við getum komist í gegnum þetta ef við stöndum saman. Við erum ein stór fjölskylda og ég held að þetta sé fordæmalaus staða í heimsfótboltanum, að leikmaður láti lífið í tengslum við leik.“
„Við erum brothættir, sorgmæddir og eigum enn erfitt með að trúa því sem hefur gerst. En við munum komast í gegnum þessa sorg saman. Allir munu sameinast í sorginni og það mun færa okkur nær hvert öðru. Þetta er sorgardagur og við ætlum að gefa okkur viku til að syrgja.“
„Við vitum að leikmennirnir, eiginkonur þeirra og makar þurfa umfram allt á stuðningi að halda. Sá stuðningur stendur þegar til boða og við munum halda áfram að vera til staðar fyrir þau. Við þurfum auðvitað líka á faglegri aðstoð að halda, en ekki síður stuðningi allra okkar stuðningsmanna, því þeim líður nákvæmlega eins og okkur í dag.“
„Við verðum að heiðra Demi á þann hátt sem hann á skilið og eftir það munum við varðveita minningu hans í hjörtum okkar að eilífu. Þetta er ótrúleg staða, nánast óskiljanleg, og gríðarlegur harmleikur sem við höfum orðið fyrir hér,“sögðu Garcia og Minambres.

Siempre en nuestros corazones.
— CD Tenerife ???????????????????????????? (@CDTOficial) November 3, 2026
???? DEP https://t.co/a8uq1NcXTR