03.11.26 - 22:00
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeildin: Þungu fargi létt af Carrick og Man Utd - PSG skoraði sex

Cunha skoraði tvö og sá síðan rautt undir lokin

Mynd: EPA

Bruno Fernandes skoraði úr vítaspyrnu

Mynd: EPA

Bæjarar unnu Atlético

Mynd: EPA

Raphinha var með tvö gegn Aston Villa

Mynd: EPA

PSG skoraði sex gegn VIllarreal

Manchester United vann langþráðan og magnaðan 3-2 endurkomusigur á Roma í 4. umferð í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu á Old Trafford í kvöld. Níu leikja hrinu án sigurs lauk því í kvöld.
United-liðið mætti varla til leiks í fyrri hálfleiknum og var frammistaðan hreint út sagt skelfileg. Matias Soule kom Roma yfir á 11. mínútu eftir agalegan varnarleik þar sem Diogo Dalot var allt of lengi að skila sér til baka. Nokkrum mínútum síðar fékk United síðan á sig vítaspyrnu þegar Ayden Heaven handlék boltann innan teigs.
Donyell Malen fór á punktinn og tvöfaldaði forystuna, en Roma fékk fleiri tækifæri til að bæta við. Senne Lammens varði frábærlega og þá átti Soule skot sem fór rétt framhjá markinu.
Það var hins vegar allt annað United-lið sem mætti til leiks í síðari hálfleik. Heimamenn byrjuðu af krafti en urðu fyrir áfalli þegar Carlos Baleba virtist togna aftan í læri og þurfti að fara af velli.
United-menn létu það þó ekki slá sig út af laginu og fengu vítaspyrnu sem gat komið þeim aftur inn í leikinn. Bruno Fernandes, fyrirliði United, steig á punktinn en spyrnan var afleit og Devis Llach, þriðji markvörður Roma, átti auðvelt með að verja.
Dómarinn úrskurðaði hins vegar að taka ætti spyrnuna aftur þar sem leikmenn Roma höfðu farið of snemma inn í vítateiginn. Fernandes fékk því annað tækifæri og skoraði þá af öryggi.
Markið gaf United byr undir báða vængi og skömmu síðar hefðu heimamenn átt að jafna. Matheus Cunha átti stórkostlega sendingu inn fyrir vörn Roma á Bryan Mbeumo, sem kom boltanum framhjá Llach. Boltinn fór hins vegar í aðra stöngina og þaðan í hina áður en hættan leið hjá. Ótrúleg óheppni hjá United.
Harry Maguire var síðan hársbreidd frá því að jafna eftir hornspyrnu, en skalli hans hafði viðkomu í varnarmanni og fór rétt framhjá. United var farið að banka af miklum krafti á dyrnar.
Í næstu sókn björguðu Roma-menn á marklínu eftir að Maguire hafði aftur skallað boltann fyrir markið. Gestirnir voru bókstaflega að lifa á lyginni og það var farið að hitna verulega undir þeim.
Það var eitthvað í loftinu á Old Trafford og United-menn nýttu sér meðbyrinn til hins ýtrasta.
Matheus Cunha jafnaði metin á 83. mínútu eftir sendingu frá Fernandes. Varnarmaður Roma missti þá af boltanum og Cunha var ekki lengi að nýta sér mistökin og koma honum í netið.
Aðeins þremur mínútum síðar ætlaði þakið af Old Trafford þegar Cunha skoraði sitt annað mark og kom United yfir. Brasilíumaðurinn átti þá hörkuskot hægra megin úr vítateignum sem söng í nærhorninu.
Ótrúleg endurkoma United var þar með fullkomnuð og fögnuðurinn gríðarlegur. Langþráður sigur var loksins í höfn og eflaust mikill léttir fyrir Michael Carrick eftir afar erfiðan kafla.
Það skyggði þó örlítið á sigurinn þegar Cunha fékk sitt annað gula spjald undir lok leiksins fyrir ljóta tæklingu. Hann hafði fengið fyrra gula spjaldið fyrir að fara úr treyjunni þegar hann fagnaði marki sínu.
Manchester United er nú með sex stig eftir fjóra leiki í Meistaradeildinni, en Roma hefur aðeins fjögur stig.
Barcelona skoraði þrjú gegn Villa
Spánarmeistarar Barcelona unnu sannfærandi 3-0 sigur á Aston Villa á Camp Nou.
Lamine Yamal kom Börsungum yfir strax á 7. mínútu og Raphinha bætti síðan við tveimur mörkum í síðari hálfleik.
Brasilíumaðurinn tvöfaldaði forystuna á 52. mínútu eftir undirbúning Fermin Lopez og innsiglaði síðan sigurinn eftir stórkostlega utanfótarsendingu Joao Cancelo.
Ítalíumeistarar Inter unnu sömuleiðis öruggan 3-0 sigur á Feyenoord.
Varnarmaðurinn Yan Bisseck kom Inter yfir á 8. mínútu og Francesco Esposito tvöfaldaði forystuna á 34. mínútu. Piotr Zielinski gerði síðan endanlega út um leikinn snemma í síðari hálfleik og tryggði Inter þægilegan sigur.
Sex mörk hjá meisturunum
Evrópumeistarar Paris Saint-Germain fóru á kostum í 6-0 stórsigri á Villarreal og skrifuðu sig um leið í sögubækurnar.
PSG skoraði fjögur mörk á rúmum sextán mínútum og varð þar með fljótasta liðið í sögu keppninnar til að ná þeim áfanga. Franska liðið sló met Real Madrid frá árinu 2011.
Joao Neves, Desire Doue, Senny Mayulu og Fabian Ruiz skoruðu mörkin fjögur á þessum ótrúlega upphafskafla.
Ruiz bætti við sínu öðru marki á 50. mínútu og kórónaði þar með frábæra frammistöðu sína áður en hinn 17 ára gamli David Boly rak síðasta naglann í kistu Villarreal með marki tólf mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma.
PSG er nú eina liðið með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir, en Villarreal hefur aðeins þrjú stig.
Bayern München vann 2-0 útisigur á Atlético Madríd í Madríd.
Lennart Karl kom Bæjurum yfir snemma í seinni hálfleik og Konrad Laimer bætti síðan við öðru marki með glæsilegu skoti upp í þaknetið.
Með sigrinum batt Bayern enda á níu leikja taplausa hrinu Atlético. Markið var jafnframt kærkomið fyrir Karl, sem hefur sætt harðri gagnrýni undanfarna daga vegna veru sinnar á samfélagsmiðlum.
Bayern er nú með átta stig í deildarkeppninni en Atlético hefur fjögur stig.
Hákon Arnar Haraldsson var í byrjunarliði Lille sem gerði markalaust jafntefli við Bodö/Glimt í Noregi og þá vann LASK Linz stórsigur á Slovan Bratislava, 4-0.
Atletico Madrid 0 - 2 Bayern
0-1 Lennart Karl ('54 )
0-2 Konrad Laimer ('74 )
Bodo-Glimt 0 - 0 Lille
Barcelona 3 - 0 Aston Villa
1-0 Lamine Yamal ('7 )
2-0 Raphinha ('52 )
3-0 Raphinha ('64 )
Feyenoord 0 - 3 Inter
0-1 Yann Bisseck ('8 )
0-2 Pio Esposito ('34 )
0-3 Piotr Zielinski ('54 )
LASK Linz 4 - 0 Slovan
1-0 Kasper Jorgensen ('19 )
2-0 Kasper Jorgensen ('37 )
3-0 Robert Ljubicic ('44 )
4-0 Samuel Adeniran ('48 )
Manchester Utd 3 - 2 Roma
0-1 Matias Soule ('11 )
0-2 Donyell Malen ('17 , víti)
1-2 Bruno Fernandes ('58 , víti)
2-2 Matheus Cunha ('83 )
3-2 Matheus Cunha ('86 )
Rautt spjald: Matheus Cunha, Manchester Utd ('90)
Villarreal 0 - 6 Paris Saint Germain
0-1 Joao Neves ('9 )
0-2 Desire Doue ('12 )
0-3 Senny Mayulu ('13 )
0-4 Fabian Ruiz ('17 )
0-5 Fabian Ruiz ('50 )
0-6 David Boly ('78 )