03.11.26 - 16:46
Kári Snorrason
Víkingar minnast stuðningsmanns sem lést fyrir aldur fram

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur hefur birt hjartnæmt myndband á samfélagsmiðlum til minningar um Aron Höskuldsson, dyggan stuðningsmann félagsins sem lést langt fyrir aldur fram.
„Síðustu dagar í 108 hafa verið þyngri en orð geta lýst. Hann Aron okkar allra lést laugardaginn 31. október.
Það er mikilvægt að við tölum saman og höldum vel utan um hvort annað í gegnum þessa erfiðu tíma. Aron snerti hjörtu ótrúlegra margra í 108 og víðar.
Þetta er gríðarlega stór missir og þyngra en tárum tekur fyrir félagið sem og hverfið allt. Hvíldu í friði Víkingur númer eitt, minning þín mun lifa,“ segir í færslu Víkings.
Eins og áður sagði var Aron einn af burðarásum stuðningsmannasveitar Víkings og ræddi hann meðal annars við Fótbolta.net fyrr í haust eftir leik Víkings og KR á Meistaravöllum.
Fótbolti.net vottar aðstandendum Arons innilegar samúðarkveðjur.