04.01.21 - 20:41
Brynjar Ingi Erluson
Brynjar Björn gerir þriggja ára samning við HK (Staðfest)

Brynjar Björn er búinn að krota undir nýjan samning

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK, hefur framlengt samning sinn við félagið til næstu þriggja ára en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í kvöld.
Brynjar tók við HK-ingum í október árið 2017 og kom liðinu upp í fyrstu tilraun.
HK hefur hafnað í 9. sæti Pepsi Max-deildarinnar í tvígang síðustu tvö tímabil og undir hans forystu hefur liðið náð besta samfellda árangri liðsins í deildinni.
Hann hefur nú framlengt samning sinn við félagið til næstu þriggja ára en Brynjar var í skýjunum með að skrifa undir nýjan samning.
„Ég er mjög ánægður með að semja við HK í þriðja sinn. Það hefur gengið vel hjá okkur á undanförnum árum en enn er tækifæri til frekari uppbyggingar og bætingar. Við í HK viljum eiga lið sem kveður að í efstu deild karla og kvenna og jafnframt gefa ungum og efnilegum leikmönnum tækifæri til að þróa leik sinn og komast út í atvinnumennsku."
„Á undanförnu ári hafa einmitt þrír leikmenn fengið tækifæri erlendis eftir að hafa staðið sig vel með HK. Við munum halda áfram með þær áherslur og byggja upp HK á þeim öfluga grunni sem fyrir er," sagði Brynjar Björn á heimasíðu HK.