Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
banner
   mið 04. febrúar 2026 08:00
Elvar Geir Magnússon
Agndofa yfir veikri mótspyrnu Chelsea - Sjáðu mark Arsenal
Chelsea þótti spila varfærnislega þrátt fyrir að vera undir í einvíginu.
Chelsea þótti spila varfærnislega þrátt fyrir að vera undir í einvíginu.
Mynd: EPA
Liam Rosenior.
Liam Rosenior.
Mynd: EPA
Arsenal vann 1-0 sigur í seinni undanúrslitaleik sínum gegn Chelsea í deildabikarnum í gær. Samtals vann Arsenal einvígið 4-2 og mætir Manchester City eða Newcastle í úrslitaleik á Wembley.

Chelsea hefur fengið talsverða gagnrýni fyrir frammistöðu sína í gær. Liðið þótti fara varfærnislega inn í leikinn á Emirates, þrátt fyrir að vera undir í einvíginu.

Allt stefndi í að leikurinn í gær myndi enda markalaus en Kai Havertz skoraði í uppbótartíma. Markið má sjá hér að neðan.

„Ég er agndofa yfir spilamennsku Chelsea. Ég trúi ekki hvað ég var að horfa á," sagði sparkspekingurinn Paul Merson, stuðningsmaður Chelsea og fyrrum leikmaður Arsenal, á Sky Sports.

„Þetta er fótboltafélagið Chelsea, með leikmenn í heimsklassa og heimsmeistara. Þetta er ekki lið sem er í fallbaráttu, þeir létu aldrei vaða á þetta. Þetta er ótrúlegt og ég er orðlaus."

„Ég trúi ekki því sem ég er að sjá, þeir eru að falla út eftir ótrúlega auma mótspyrnu í undanúrslitaleik í stórri keppni. Láttu vaða á þetta og farðu þá út með sæmd. Ekki falla úr leik með svona hætti. Þeir voru í öðrum gír."

Liam Rosenior, stjóri Chelsea, svaraði gagnrýnendum í viðtölum eftir leikinn í gær.


Svipmyndir úr leiknum í gær:

Athugasemdir
banner