Í kvöld kemur í ljós hvaða lið mætast í úrslitum enska deildabikarsins, en Manchester City og Newcastle United berjast um síðasta lausa sætið klukkan 20:00 á Etihad-leikvanginum í Manchester-borg.
Man City er í kjörstöðu eftir að hafa unnið 2-0 sigur í fyrri leiknum sem fór fram á St. James´Park.
Antoine Semenyo og Rayan Cherki skoruðu mörk Man City í leiknum, en Semenyo er í byrjunarliðinu á meðan Cherki er á bekknum ásamt Rodri.
Omar Marmoush er frammi í stað Erling Braut Haaland og þá fær James Trafford tækifæri í markinu. Marc Guehi, sem kom til Man City frá Crystal Palace í vetrarglugganum, er í leikbanni. Ruben Dias er búinn að jafna sig af meiðslum og tekur sér sæti á bekknum ásamt norska táningnum Sverre Nypan. Hann eyddi fyrri hluta tímabilsins hjá Middlesbrough í B-deildinni, en var kallaður aftur til Man City í síðasta mánuði.
Eddie Howe gerir þrjár breytingar frá 4-1 tapi Newcastle gegn Liverpool um helgina. Nick Woltemade, Sven Botman og Aaron Ramsdale byrja í stað Anthony Elanga, Nick Pope og Harvey Barnes.
Sigurvegarinn úr einvíginu mætir Arsenal í úrslitum á Wembley.
Man City: Trafford, Nunes, Khusanov, Ake, Ait-Nouri, Gonzalez, Reijnders, O'Reilly, Semenyo, Foden, Marmoush
Newcastle: Ramsdale, Trippier, Thiaw, Botman, Burn, Hall, Tonali, Ramsey, Willock, Gordon, Woltemade.
Athugasemdir


