Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
banner
   mið 04. febrúar 2026 21:56
Brynjar Ingi Erluson
Enski deildabikarinn: Man City mætir Arsenal í úrslitum - Marmoush með tvö
Marmoush setti tvö
Marmoush setti tvö
Mynd: EPA
Man City mætir Arsenal í úrslitum
Man City mætir Arsenal í úrslitum
Mynd: EPA
Manchester City 3 - 1 Newcastle (5-1, samanlagt)
1-0 Omar Marmoush ('7 )
2-0 Omar Marmoush ('29 )
3-0 Tijjani Reijnders ('32 )
3-1 Anthony Elanga ('62 )

Manchester City mun spila til úrslita í enska deildabikarnum eftir að hafa unnið sannfærandi 3-1 sigur á Newcastle United á Etihad-leikvanginum í kvöld, en samanlagt vann Man City 5-1 og mun því mæta Arsenal á Wembley í næsta mánuði.

Egyptinn Omar Marmoush var fremstur hjá Man City. Pep Guardiola leyfði sér að setja markamaskínuna Erling Braut Haaland á bekkinn á meðan Marmoush sá um að koma heimamönnum alla leið.

Marmoush gerði í raun út um einvígið á 7. mínútu er hann keyrði að teignum og skaut boltanum sem fór af Dan Burn og í netið.

Þetta var aðeins þriðja mark Marmoush á tímabilinu, en hann náði í fjórða markið sitt rúmum tuttugu mínútum síðar er Kieran Trippier mistókst að hreinsa fyrirgjöf Antoine Semenyo og náði Marmoush að stanga boltann í netið.

Skyndisóknir Man City voru upp á tíu og aðeins þremur mínútum eftir anna mark Marmoush var röðin komin að Tijjani Reijnders sem skoraði eftir frábæran undirbúning Semenyo.

James Trafford átti þá nokkrar flottar vörslur í leiknum og sá til þess að liðið færi með hreint lak inn í hálfleik.

Í þeim síðari litu Newcastle-menn aðeins betur út. Anthony Elanga kom inn af bekknum og minnkaði muninn á 62. mínútu eftir að hafa dansað með boltann áður en hann kláraði með laglegu skoti framhjá Trafford.

Sænski landsliðsmaðurinn fékk frábært tækifæri til þess að gefa Newcastle-mönnum enn meiri von en klikkaði úr dauðafæri.

Ágætis svar hjá Newcastle í seinni en ekki nóg til þess að gera þetta að spennandi einvígi.

Man City flaug áfram í úrslitaleikinn þar sem það mætir Arsenal á Wembley í næsta mánuði. Þetta verður í fyrsta sinn sem liðin mætast í úrslitum bikarsins síðan 2018 en þar vann Man City 3-0 sigur þar sem Vincent Kompany, sem í dag þjálfar Bayern München, var valinn maður leiksins.
Athugasemdir
banner
banner