Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
   mið 04. febrúar 2026 22:08
Brynjar Ingi Erluson
Spænski konungsbikarinn: Orri Steinn skaut Sociedad í undanúrslit
Orri Steinn fagnar marknu sem sendi Sociedad í undanúrslit
Orri Steinn fagnar marknu sem sendi Sociedad í undanúrslit
Mynd: EPA
Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson var hetja Real Sociedad með sigurmarki á 80. mínútu í 3-2 sigri á Deportivo Alaves í 8-liða úrslitum spænska konungsbikarsins í kvöld.

Tímabilið hefur verið Orra erfitt og meiðsli verið að plaga hann, en hann er hægt og rólega að finna taktinn. Markið var annað markið hans á tímabilinu, það fyrra kom í 2. umferð deildarinnar 24. ágúst.

Hann byrjaði á bekknum hjá Sociedad gegn Alaves. Staðan var 2-1 fyrir Alaves í hálfleik. Abderrahmane Rebbach skoraði á 8. mínútu en Mikel Oyarzabal jafnaði sjö mínútum síðar.

Spænski sóknarmaðurinn Toni Martinez kom Alaves aftur yfir úr vítaspyrnu og gat tvöfaldað forystuna þegar liðið fékk aðra vítaspyrnu rúmum tuttugu mínútum fyrir leikslok en Alex Remiro varði vítaspyrnuna og hélt Sociedad inn í leiknum.

Orri Steinn var kynntur til leiks sjö mínútum síðar. Goncalo Guedes jafnaði metin á 76. mínútu og fjórum mínútum síðar gerði Orri Steinn sigurmarkið er Luka Sucic sendi hann í gegn og setti Orri boltann á milli fóta hjá markverði Alaves og í netið.

Mikil gleði sömuleiðis fyrir Sociedad sem kom sér í undanúrslit bikarsins.

Inaki Williams sendi þá Athletic Bilbao í undanúrslitin með sigurmarki á sjöttu mínútu í uppbótartíma í 2-1 sigri á Valencia.

Dregið verður í undanúrslit á föstudag en Barcelona, Bilbao og Sociedad verða öll í pottinum ásamt Real Betis eða Atlético Madríd, en þau mætast annað kvöld í síðasta leiknum í 8-liða úrslitum.

Úrslit og markaskorarar:

Alaves 2 - 3 Real Sociedad
1-0 Abde Rebbach ('8 )
1-1 Mikel Oyarzabal ('15 )
2-1 Toni Martinez ('29 , víti)
2-1 Toni Martinez ('67 , Misnotað víti)
2-2 Goncalo Guedes ('76 )
2-3 Orri Oskarsson ('80 )

Valencia 1 - 1 Athletic
0-1 Umar Sadiq ('26 , sjálfsmark)
1-1 Umar Sadiq ('35 )
1-1 Mikel Jauregizar ('75 , Misnotað víti)
1-2 Inaki Williams (´90 )


Athugasemdir
banner