Fotbolti.net
04.03.21 - 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Subway

England í dag - Stórleikur á Anfield

Liverpool tekur á móti Chelsea í mikilvægum leik í Meistaradeildarbaráttunni.

Liverpool tekur á móti Chelsea í mikilvægum leik í Meistaradeildarbaráttunni.

Canon

Mynd: Getty Images

Það eru þrír leikir í ensku úrvalsdeildinni á þessum fimmtudegi. Það er meðal annar stórleikur á Anfield í kvöld.
Tveir leikir hefjast klukkan 18:00. Fulham, sem er í harðri fallbaráttu, tekur á móti Tottenham og getur með sigri þar jafnað Newcastle að stigum í 17. sæti. Tottenham er um miðja deild en liðið vann sannfærandi sigur á Burnley um síðustu helgi þar sem Gareth Bale fór á kostum.

West Brom og Everton eigast einnig við á sama tíma. West Brom er í 19. sæti, sex stigum á eftir Fulham og þarf nauðsynlega á sigri að halda í dag. Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton eru í baráttu um Evrópusæti.

Síðasti leikur dagsins byrjar svo klukkan 20:15 og er það stórleikur vikunnar þar sem ríkjandi Englandsmeistarar Liverpool mæta Chelsea. Bæði þessi lið eru í Meistaradeildarbaráttu. Chelsea er í fimmta sæti, einu stigi frá fjórða sætinu, og Liverpool er í sjötta sæti, einu stigi á eftir Chelsea.

Leikirnir verða sýndir í beinni útsendingu á Síminn Sport.

fimmtudagur 4. mars
18:00 Fulham - Tottenham
18:00 West Brom - Everton
20:15 Liverpool - Chelsea

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City9+1021
2Arsenal8+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool8+315
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Leeds9+111
11Hull City9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.