Barcelona vann magnaðan 3-0 sigur gegn Sevilla í Copa del Rey, spænska Konungsbikarnum, í gær. Börsungar töpuðu fyrri leiknum 2-0 en náðu með dramatískum sigri að koma sér í úrslitaleikinn.
Barcelona vann einvígið í framlengingu.
Staðan í leiknum í gær var lengi 1-0 en í uppbótartíma skoraði Gerard Pique og kom leiknum í framlengingu.
Lionel Messi skoraði ekki í leiknum en innilegur fögnuður hans eftir mark Pique hefur vakið athygli.
Talað hefur verið um að Messi sé áhugalaus en þær raddir hljóðna því löngunin til að fagna titlum með Barcelona virðist algjörlega til staðar enn.
Athugasemdir