Fotbolti.net
20.09.26 - 18:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deildin: Dramatík í Eyjum - ÍA fór illa með Blika

Besta deildin: Dramatík í Eyjum - ÍA fór illa með Blika
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjórir leikir fóru fram í Bestu deildinni í dag. Það er gríðarleg spenna í fallbaráttunni. ÍBV gat komist upp úr botnsætinu með sigri á Val.
Róbert Elís Hlynsson fékk fyrsta færi leiksins en skallaði framhjá. Lúkas Logi Heimisson fékk gott færi stuttu síðar en skotið laust og beint á Ara í Haraldstovu í marki ÍBV.

ÍBV braut ísinn þegar tíu mínútur voru til loka venjulegs leiktíma þegar Mattias Edeland skoraði með laglegu skallamarki.

Það var dramatík í lokin því Kristófer Dagur Arnarsson jafnaði metin eftir sendingu frá Patrick Pedersen í blálokin.

FH er sex stigum frá fallsæti þegar níu stig eru eftir í pottinum eftir frábæran sigur á Stjörnunni.

FH komst yfir þegar Jóhannes Kristinn Bjarnason fékk nægan tíma til að athafna sig inn á teignum og skoraði örugglega. Gustav Kjeldsen var nálægt því að jafna metin en Jóhannes bjargaði á síðustu stundu.

FH bætti öðru markinu við stuttu síðar en það var Gils Gíslason sem skoraði eftir að hann slapp einn í gegn. FH fékk síðan vítaspyrnu eftir hálftíma leik og Kjartan Kári Halldórsson skoraði. Hann bætti síðan fjórða markinu við strax í kjölfarið. Staðan orðin 4-0 eftir rúmlega hálftíma leik.

Stjörnumenn bitu frá sér í seinni hálfleik en Benedikt Warén minnkaði muninn strax í upphafi. Hann skoraði síðan aftur með skoti fyrir utan teiginn.

Guðmundur Andri Tryggvason innsiglaði sigur FH í lokin eftir glæsilegan undirbúning Arnórs Borg Guðjohnsen.

ÍA fór hamförum gegn Blikum

ÍA vann frábæran sigur á Breiðabliki á Skaganum. Gísli Eyjólfsson kom heimamönnum yfir gegn sínum gömlu félögum og Viktor Jónsson bætti öðru markinu við undir lok fyrri hálfleiks.

Viktor var aftur á ferðinni þegar hann skoraði með skalla snemma í seinni hálfleik. Markús Páll Ellertsson innsiglaði sigur ÍA. Birkir Þorsteinsson klóraði í bakkann fyrir Blika í lokin.

Fram er stigi á eftir KR í baráttunni um 2. sæti eftir jafntefli gegn Keflavík. Stefan Ljubicic kom Keflavík yfir strax í upphafi seinni hálfleiks en Freyr Sigurðsson jafnaði metin stuttu síðar eftir ótrúlegan darraðadans inn á teignum.

Freyr kom síðan Fram yfir þegar hann skoraði með hnitmiðuðu skoti. Elvis Bwomono bjargaði stigi fyrir Keflavík með skallamarki eftir rúmlega klukkutíma leik.

ÍA 4 - 1 Breiðablik
1-0 Gísli Eyjólfsson ('29 )
2-0 Viktor Jónsson ('43 )
3-0 Viktor Jónsson ('52 )
4-0 Markús Páll Ellertsson ('69 )
4-1 Birkir Þorsteinsson ('91 )
Lestu um leikinn

Keflavík 2 - 2 Fram
1-0 Stefan Alexander Ljubicic ('48 )
1-1 Freyr Sigurðsson ('52 )
1-2 Freyr Sigurðsson ('59 )
2-2 Elvis Okello Bwomono ('66 )
Lestu um leikinn

ÍBV 1 - 1 Valur
1-0 Mattias Edeland ('80 )
1-1 Kristófer Dagur Arnarsson ('92 )
Lestu um leikinn

FH 5 - 2 Stjarnan
1-0 Jóhannes Kristinn Bjarnason ('14 )
2-0 Gils Gíslason ('20 )
3-0 Kjartan Kári Halldórsson ('32 , víti)
4-0 Kjartan Kári Halldórsson ('33 )
4-1 Benedikt V. Warén ('46 )
4-2 Benedikt V. Warén ('61 )
5-2 Guðmundur Andri Tryggvason ('90 )
Lestu um leikinn
Besta deildin: Dramatík í Eyjum - ÍA fór illa með Blika
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deildin: Dramatík í Eyjum - ÍA fór illa með Blika
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.24+5059
2KR24+2847
3Fram23+1245
4Breiðablik24+133
5ÍA24-333
6Keflavík23-828
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.