Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að sér sé „alveg sama“ um hvort Íran verði með á HM í fótbolta sem fram fer í sumar í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
Stríð geysar í Miðausturlöndum og yfirmaður Bandaríkjahers segir að ráðist hafi verið á nærri 2.000 skotmörk í Íran.
Stríð geysar í Miðausturlöndum og yfirmaður Bandaríkjahers segir að ráðist hafi verið á nærri 2.000 skotmörk í Íran.
„Íran er sigruð þjóð. Þeir eru að verða bensínlausir," sagði Trump við Politico.
Íran var fyrsta landsliðið sem vann sér inn þátttökurétt á HM en sendi engan fulltrúa á skipulagsfund í Atlanta í þessari viku. Vangaveltur eru um hvort landslið Írans muni spila á bandarískri grundu í sumar.
Íran á að vera í G-riðli með Belgíu, Egyptalandi og Nýja Sjálandi. Liðið á að spila tvo leiki í Los Angeles og einn í Seattle. Ef Bandaríkin og Íran enda í öðru sæti í sínum riðlum gætu liðin mæst í útsláttarkeppninni.
Athugasemdir



