24.10.26 - 19:53
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir dagsins: Jackson bestur - Þrír skúrkar

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það fóru fjórir leikir fram í ensku úrvalsdeildinni í dag og gaf BBC leikmönnum einkunnir úr stórleikjunum.
Aston Villa lagði Manchester City að velli í fyrsta leik dagsins og hafði Tottenham svo betur gegn Chelsea á Stamford Bridge í síðasta leiknum.
Það kemur ekki á óvart að Nicolas Jackson var besti maðurinn á Villa Park þar sem hann skoraði bæði mörk heimamanna og fær 9 í einkunn.
Marc Guéhi var skúrkurinn í liði Man City með 4 í einkunn. Hann hefur gert mikið af mistökum frá félagaskiptunum til City og gerði önnur slík í dag áður en Enzo Maresca skipti honum af velli í leikhlé.
Iliman Ndiaye var bestur í liði City með 8 í einkunn en Erling Haaland skoraði eina mark liðsins í 2-1 tapi og fær 7 fyrir sinn þátt.
Þegar einkunnirnar í London eru skoðaðar reyndist markvörðurinn ungi Mike Penders einn af tveimur skúrkum ásamt Cole Palmer. Hann fær 4 í einkunn fyrir að hafa gefið Tottenham fyrsta mark leiksins, eftir að hafa verið öryggið uppmálað fram að þeim mistökum þegar hann kýldi hornspyrnu í eigið net. Palmer fær líka 4 í einkunn fyrir að láta reka sig af velli eftir að hafa þó átt fínan leik.
Franski U21 landsliðsmaðurinn Mathys Tel er maður leiksins með 8 í einkunn en ekvadorski miðjumaðurinn Moisés Caicedo fær líka 8 fyrir sinn þátt.
Aston Villa: Suzuki (7), Cash (7), Lindelöf (6), Torres (6), Maatsen (6), McGinn (7), Kamara (7), Gomes (6), Alysson (7), Manzambi (6), Jackson (9).
Varamenn: Mbaye (7), Buendia (6), Barkley (6), Madjo (6), Goretzka (6)
Man City: Donnarumma (5), Khusanov (6), Dias (5), Guehi (4), Gvardiol (5), Anderson (6), Enzo (6), Ndiaye (8), Doku (6), Cherki (5), Haaland (7)
Varamenn: Foden (6), Lewis (6), McAidoo (6)
Chelsea: Penders (4), Acheampong (6), Lacroix (6), Colwill (6), Caicedo (8), Henderson (6), Hato (5), Neto (7), Quenda (6), Palmer (4), Rogers (6)
Varamenn: Palestra (6), Estevao (6)
Tottenham: Kinsky (5), Gray (6), Van Hecke (7), Van de Ven (7), Robertson (7), Fernandes (7), Tonali (6), Maddison (5), Kudus (6), Tel (8), Marmoush (5)
Varamenn: Gallagher (7), Solanke (6), Porro (6)