Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 04. apríl 2020 16:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hvíta-Rússland: Willum lék í fyrsta sigri BATE
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
BATE 1 - 0 Rukh Brest
1-0 Stanislav Dragun ('7 )

BATE vann Rukh Brest í Borisov í þriðju umferð hvít-rússnesku deildarinnar í dag. BATE hafði farið illa af stað í mótinu og tapað fyrstu tveimur leikjunum.

Willum Þór Willumsson var i byrjunarliði BATE annan leikinn í röð og spilaði hann fyrstu 85 mínútur leiksins. Willum fékk að líta gula spjaldið eftir klukkutíma leik.

Eina mark leiksins kom á sjöundu mínútu en það skoraði miðjumaðurinn Stanislav Dragun.

Hvíta-Rússland er eina landið í Evrópu þar sem enn er verið að spila fótbolta og ekki útlit fyrir að það breytist.

Sjá einnig:
Segir enga ástæðu til að stöðva fótboltann í Hvíta-Rússlandi
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner