Fotbolti.net
04.06.15 - 13:04
Magnús Már Einarsson

Theódór Elmar í AGF (Staðfest)

Theódór Elmar í AGF (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Theódór Elmar Bjarnason hefur skrifað undir tveggja ára samning við danska félagið AGF. Fyrr í dag var greint frá því að Theódór Elmar myndi yfirgefa Randers þegar samningur hans rennur út í lok mánaðarins.
„AGF er með spennandi verkefni í gangi. AGF er stórt félag með mikla möguleika og ástríðufulla stuðningsmenn og ég er spenntur fyrir að spila fyrir framan þá,\" sagði Elmar við heimasíðu AGF.

Hinn 28 ára gamli Elmar kom til Randers frá IFK Gautabog árið 2012. Hann hefur spilað sinn síðasta leik með Randers því hann verður ekki með liðinu gegn Odense í lokaumferð dönsku úrvalsdeildarinnar næstkomandi sunnudag.

AGF er á leið í dönsku úrvalsdeidlina á nýjan leik en liðið er öruggt upp fyrir lokaumferðina í B-deildinni sem fer fram um helgina.

„Ég er ánægður með að Elmar hafi valið AGF. Við fáum tæknilega sterkan og fjölhæfan leikmann með reynslu af því að spila með landsliði. Það verður gott að fá hann,\" sagði Morten Wieghorst þjálfari AGF.

Elmar er í íslenska landsliðshópnum sem mætir Tékkum í næstu viku en hann hefur spilað fjóra af fimm leikjum Íslands í undankeppninni í stöðu hægri bakvarðar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.