Fotbolti.net
04.06.15 - 19:30
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Walter Zenga tekur við Sampdoria (Staðfest)

Walter Zenga tekur við Sampdoria (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Walter Zenga, fyrrum markvörður ítalska landsliðsins, hefur verið ráðinn þjálfari Samdporia.

Zenga tekur við af Sinisa Mihajlovic sem hætti fyrr í vikunni.
Hinn 55 ára gamli Zenga hefur komið víða við síðan þjálfaraferill hans hófst hjá New England Revolution árið 1998.

Zenga hefur meðal annars þjálfað í Rúmeníu, Tyrklandi og Sameinuðu arabísku Furstadæmunum.

Þá þjálfaði hann bæði Catania og Palermo á sínum tíma í Serie A.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.