Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   mið 04. júní 2025 15:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ásgeir Marteins spáir í 6. umferð Lengjudeildarinnar
Ásgeir Marteinsson.
Ásgeir Marteinsson.
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Fær einhvern veginn þrjú gul í dag.
Fær einhvern veginn þrjú gul í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fimm frá Kristjáni Atla í dag.
Fimm frá Kristjáni Atla í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hálfur Skoti.
Hálfur Skoti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sjötta umferð Lengjudeildarinnar átti öll að fara fram í kvöld en leik Grindavíkur og Keflavíkur hefur verið frestað vegna þátttöku leikmanna liðanna í U19 landsliðsverkefni á Englandi.

Hinir fimm leikirnir fara fram í kvöld og við fengum Ásgeir Marteinsson, leikmann Þróttar Vogum, til að spá í spilin. Þróttarar eru á toppi 2. deildar.

Ásgeir fylgir á eftir Sævari Atla Magnússyni sem var með tvo leiki rétta. Svona spáir Ásgeir leikjunum:

Fylkir 2 - 2 Leiknir (19:15)
Leiknismenn komnir með nýtt púströr með nýjum þjálfara sem mun koma sér vel í Lautinni en það verður ekki nóg til að vinna. Þetta fer 2-2, Dagur Ingi Hammer og Óli Íshólm með mörkin fyrir Leikni og tyggjó-kallinn með bæði mörkin fyrir Fylki, þá mun Ragnar Bragi ná að fá 3 gul í þessum leik.

Grindavík 2 - 1 Keflavík (FRESTAÐ!)
Vinur minn spilaði með Halla Hróðmars fyrir mjög mörgum árum og hann segir að hann sé að búa til alvöru skrímsli þarna í Grindavík. Keflvíkingar eru reyndar ólseigir og ef það verður mikill vindur munu liðin bjóða upp á hágæða knattspyrnu þar sem þetta eru mikil vind-lið. Grindavík stelur þessu í lokin með hjólara frá Adam Árna og Kári Sigfússon skorar fyrir Kef.

HK 5 - 0 Selfoss (19:15)
Þetta er leikur umferðarinnar, vinur minn á frænda sem býr á Selfossi en sá maður ætlar ekki að mæta á leikinn samkvæmt mínum bestu heimildum. HK mun skora 5, Jói Þór byrjar á að hlaupa yfir allan völlinn og skora sláin inn. Haukur Leifur mun fá gult fyrir að fagna því marki of ákaft. Ívar Örn sagði við mig á KFC á sunnudaginn að hann ætlaði skora með hægri í þessum leik, maður verður að trúa því. Þá í seinni hálfleik mun Arnþór Ari skora með öxlinni, Atli Arnars mun skora að skoskum sið því hann er 1/2 Skoti og þá mun Eiður Atli negla síðasta naglann í kistu Selfyssinga. Það mun allt sjóða upp úr eftir leik og Birkir styrkur mun fá rautt fyrir að segja við Bjarna Jó: „talaðu við höndina því andlitið er ekki hlusta", alveg ruglaður þessi gæi.

ÍR 5 - 3 Þróttur R. (19:15)
ÍR-ingar eru búnir að finna loðnuna, þetta er hópur af skemmtilegum strákum sem skemmta sér í fótbolta. Ég held að Kristjan Atli, sem ég hef alltaf litið á sem nokkurs konar litla bróður, muni ná góðri jarðtengingu eftir að hafa gengið berfættur um Hamraborgina í hádeginu, og muna allt í einu hvert hann setti markaskóna sem munu skila honum 5 mörkum í kvöld. Eftir að ÍR-ingar komast í 5-0 mun Eiður Jack taka af skarið og klóra í bakkann fyrir Þróttara með fullkomnri þrennu: hægri, vinstri og skalli, en það verður því miður ekki nóg.

Njarðvík 3 - 2 Fjölnir (19:15)
Þetta verður hörku leikur, Gunni Már tekur alvöru Al Pacino ræðu fyrir leik og Máni Austmann mun skora 2 mörk snemma, Máni mun frumsýna nýtt fagn eftir seinna markið. Gunnar Heiðar fer alltaf ótroðnar slóðir og það eina sem hann mun gera í hálfleik er að spila gömlu góðu þjóðhátíðarlögin en á einhvern ótrúlegan hátt mun það svínvirka og þeir grænklæddu munu koma til baka og sækja sigurinn. Gunnar Heiðar mun segja að það hafi verið nýja klippingin hans frá Rakarastólnum sem skilaði þeim þessum sigri.

Þór 2 - 1 Völsungur (19:15)
Hér verður fátt um fína drætti, Þór kemst í 2-0 snemma með mörkum frá Sigfúsi Fannari því ég sá að hann er búinn að vera heitari en kveikjari. Ég er einstakur áhugamaður um að klóra í bakkann og munu Húsvíkingar að sjálfsögðu gera það í þessum leik, með marki frá Rafnari Mána Gunnarsyni, þekki hann ekki neitt en hef trú á hann er líka sérlegur áhugamaður um að klóra í bakkann.

Fyrri spámenn:
Sævar Atli (2 réttir)
Hrafnkell Freyr (4 réttir)
Júlíus Mar (4 réttir)
Bjarki Björn (3 réttir)
Elmar Kári (1 réttur)
Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    ÍR 6 4 2 0 10 - 3 +7 14
2.    Njarðvík 6 3 3 0 15 - 5 +10 12
3.    HK 6 3 2 1 11 - 6 +5 11
4.    Þór 6 3 1 2 16 - 13 +3 10
5.    Þróttur R. 6 3 1 2 11 - 9 +2 10
6.    Keflavík 5 3 0 2 13 - 7 +6 9
7.    Völsungur 6 3 0 3 9 - 13 -4 9
8.    Grindavík 5 2 1 2 17 - 13 +4 7
9.    Fylkir 6 1 2 3 7 - 10 -3 5
10.    Leiknir R. 6 1 1 4 6 - 19 -13 4
11.    Fjölnir 6 0 3 3 7 - 13 -6 3
12.    Selfoss 6 1 0 5 4 - 15 -11 3
Athugasemdir