Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
   fim 04. júní 2026 11:23
Kári Snorrason
Man City á flesta fulltrúa á HM - Enska deildin í sérflokki
Mynd: EPA
Manchester City á flesta fulltrúa á HM. Alls munu nítján leikmenn félagsins, frá tólf mismunandi löndum, spila fyrir þjóð sína á mótinu.

Næstu lið þar á eftir eru Bayern Munchen (18), PSG (16), Arsenal (16) og Barcelona (15).

Alls taka leikmenn frá 449 mismunandi liðum í 71 landi þátt á HM.

Þá er enska úrvalsdeildin í sérflokki samanborið við aðrar deildir en alls eru 154 leikmenn úr deildinni sem munu spila á HM. Næsta deild þar á eftir er Bundesliga með 93 fulltrúa.


Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner