27.07.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Pirlo sendir frá sér yfirlýsingu: Sorglegt hvernig umræðan hefur þróast

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalinn Andrea Pirlo hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir að fréttir bárust af því að ítalska fótboltasambandið íhugi að hætta við að ráða hann sem landsliðsþjálfara.

TENGT EFNI
Íhuga að hætta við að ráða Pirlo - „Yrðu alvarleg mistök að fá hann“
Samkvæmt Gazzetta dello Sport er Pirlo sérstakur sendiherra Fonbet í Rússlandi. Samningurinn var gerður eftir að hann tók við Dubai City FC í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, en félagið er í eigu rússneska auðjöfursins Sergey Lomakin sem á einnig hlut í Fonbet.
Giovanni Malagao, forseti ítalska sambandsins, er sagður óviss með að ráða Pirlo vegna pólitískra áhrifa. Pirlo hafnar því að þetta sé pólitískt og samningurinn hafi aðeins verið gerður í auglýsingaskyni.
„Síðustu daga hef ég með mikilli sorg fylgst með umræðunni sem þróaðist um nafn mitt og möguleikann á að taka við starfi þjálfara ítalska landsliðsins," segir Pirlo.
„Af virðingu fyrir stofnunum, sambandinu og öllu sem að málinu kom, hef ég kosið að þegja fram að þessu. Hins vegar finnst mér rétt að ég skýri ákveðna þætti.
„Á ferli mínum, fyrst sem leikmaður og síðan sem þjálfari, hef ég alltaf gegnt skyldum mínum með fullri virðingu fyrir lögum landanna sem ég starfaði í og ??samningum sem ég undirritaði.“
„Ég vil þakka Maldini og Leonardo fyrir virðinguna og trúna sem þeir sýndu mér. Ég veit hversu hæfir þeir eru, hversu alvarlega þeir taka þessu og hversu ástfangnir þeir hafa alltaf verið af ítölskum fótbolta.