Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
   fim 04. júní 2026 10:55
Innkastið
Skeggvöxtur Skagamanna í húfi gegn Víkingi - „Kemur beint frá pabba Lárusar“
Vonast til þess að halda skegginu fram eftir sumri.
Vonast til þess að halda skegginu fram eftir sumri.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Lárus Orri Sigurðsson og þjálfarateymi ÍA hafa tekið upp á því að safna skeggi þar til liðið dettur úr leik í Mjólkurbikarnum.

Lárus Orri sagði í viðtali við Fótbolta.net í síðasta mánuði að menn á bekknum væru orðnir ansi skeggjaðir.

ÍA mætir Íslandsmeisturum Víkings í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins 12. júní þar sem skeggvöxtur þjálfarateymisins verður í húfi.

Í Innkastinu ræddi Skagamaðurinn Gunnlaugur Jónsson um skeggvöxt Skagamanna.

„Það er nú heldur betur komið frá 1983 liðinu. Þá söfnuðu allir leikmenn og þjálfarar sem söfnuðu skeggi til þess að komast áfram í bikarnum og þeir urðu bikarmeistarar. Þeir náðu að skerða skegg sitt eftir bikarúrslitaleikinn. Það er spurning hvort Lárus Orri haldi skegginu eftir leikinn gegn Víking,“ sagði Gulli Jóns.

Þá sagði Valur Gunnarsson að það kæmi á óvart að Lárus Orri væri með svona leik. „Þetta kemur beint frá pabba hans (Sigurði Lárussyni), hann var fyrirliði Skagans 1983,“ sagði Gulli léttur að lokum.


Innkastið - Farið yfir geggjaða umferð með Gulla Jóns
Slapp
banner
banner