Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
banner
   fim 04. júní 2026 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kraká
Tekið við keflinu hjá FH - „Dýrka að horfa á hana spila"
Eimskip
Ingibjörg Magnúsdóttir.
Ingibjörg Magnúsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Thelma Karen var efnilegasti leikmaður Bestu deildarinnar í fyrra.
Thelma Karen var efnilegasti leikmaður Bestu deildarinnar í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Thelma Karen Pálmadóttir sló í gegn í Bestu deildinni í fyrra og var seld til sænska félagsins Häcken. Núna er annar FH-ingur búin að taka við keflinu af henni sem mest spennandi leikmaður deildarinnar; Ingibjörg Magnúsdóttir, sem fædd er árið 2009.

Ingibjörg hefur verið í sterkasta liði umferðarinnar hér á Fótbolta.net þrjár umferðir í röð og var sterkasti leikmaður 6. umferðar. Hún er að taka stærra hlutverk í FH og fyrir Thelmu er virkilega gaman að fylgjast með sínum gamla liðsfélaga standa sig svona vel.

„Það er frábært að hún sé að taka svona vel við þessu. Ég er ógeðslega stolt af henni, hún er ein mín besta vinkona," sagði Thelma Karen við Fótbolta.net í Kraká þar sem hún er stödd í verkefni með íslenska landsliðinu.

„Ég dýrka að horfa á hana spila og sjá hvað henni gengur vel. Ég er ekkert smá stolt af henni."

Er þetta ekki leikmaður sem getur farið mjög langt?

„Alveg klárlega. Hún getur allt sem hún vill. Ég hlakka til að sjá hana fara út og spila á móti henni einhvers staðar. Eða með henni," sagði Thelma Karen.
Slapp