Fotbolti.net
26.07.26 - 11:32
Brynjar Ingi Erluson

Liverpool leiðir kapphlaupið um Barcola

Bradley Barcola

Bradley Barcola

Canon

Mynd: EPA

Franski leikmaðurinn Bradley Barcola ætlar ekki að framlengja samning sinn við Evrópumeistara Paris Saint-Germain, og er sagður opinn fyrir því að fara til Liverpool.
Barcola hafði ákveðið að fresta samningaviðræðum við PSG þar til heimsmeistaramótinu lyki, en Loic Tanzi hjá L'Equipe segir að hann hafi nú slitið viðræðunum við félagið.

Þessi 23 ára gamli vængmaður er samningsbundinn PSG til ársins 2028 en nýr samningur hefði fært honum verulega launahækkun.

Ákvörðun Barcola er sögð íþróttalegs eðlis enda vill hann takast á við nýja áskorun. Fabrizio Romano segir að Liverpool sé í forgangi hjá Barcola, takist félaginu að ná samkomulagi við PSG um kaupverð.

Liverpool bíður nú eftir svörum frá PSG um verðmiðann og hvort franska félagið sé yfirhöfuð tilbúið að selja.

Eins og sakir standa leiðir Liverpool kapphlaupið um franska landsliðsmanninn, sem á að baki 28 landsleiki og sex mörk.

Barcola getur leyst allar stöðurnar í fremstu víglínu og fjölhæfni hans myndi koma sér vel fyrir Liverpool eftir brotthvarf Mohamed Salah.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.