Heimir Guðjóns: Eftir þennan leik þá þurfum við að íhuga það að fá einhverja leikmenn

Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Alltaf svekkjandi að tapa en við áttum ekkert skilið út úr þessum leik,“ sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, eftir 2-0 tap gegn ÍR í Breiðholtinu í dag.
„Mér fannst ÍR-ingarnir miklu betri en við. Mér fannst eiginlega í seinni hálfleik bara eitt lið á vellinum og við vorum ekki tilbúnir í þessi grunnatriði sem þurfa að vera til staðar þegar að fótbolti er spilaður og það versnaði bara þegar leið á leikinn. Eftir annað markið þá bara hendum við inn hvíta handklæðinu. þessi leikur var svolítið, mer fannst þetta geta verið leikur sem að gæti skilgreint liðið, hvert við vildum fara og hvað við vildum gera en við kolféllum á því prófi,“ hélt hann svo áfram.
Þeir koma inn í þennan leik eftir svekkjandi tap í undanúrslitum Mjólkurbikarsins þar sem þeir þurftu að játa sig sigraða í vítaspyrnukeppni, fannst Heimi sitt lið taka það með sér inn í þennan leik?
„Nei ég meina við lokuðum þeim leik strax og það er bara þannig í fótbolta að þú ert dæmdur af síðasta leik og við vorum dæmdir af síðasta leik en við skildum allt eftir á vellinum þar og lögðum okkur fram en það var ekki til staðar hér.“
Glugginn er opinn og aðspurður hvort þeir ætli sér eitthvað að kíkja á markaðinn segir hann:
„Ég svona, eftir þennan leik þá held ég að við þurfum að setjast niður og íhuga það að fá einhverja leikmenn.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum.




