Nýliðarnir berjast um brasilískan framherja

Emerson í leik með Toulouse gegn PSG

Mynd: EPA

Emerson í leik með Toulouse gegn PSG

Mynd: EPA
Nýliðar Ipswich Town og Hull City berjast blóðum bardaga um brasilíska framherjann Emersonn, sem er á mála hjá Toulouse í Frakklandi.
Þessi 21 árs gamli leikmaður skoraði sex deildarmörk á sínu fyrsta tímabili með Toulouse.
Hann er í sigtinu hjá bæði Ipswich og Hull, en Toulouse hafnaði á dögunum 15 milljóna punda tilboði frá Hull.
Samkvæmt Sky Sports hefur Hull nú lagt fram nýtt tilboð upp á 22,3 milljónir punda og Ipswich hefur gert slíkt hið sama.
Emersonn ólst upp hjá Athletico Paranaense í heimalandinu en hélt til Evrópu í janúar á síðasta ári. Þar spilaði hann með Göztepe áður en Toulouse fékk hann um sumarið.
Hann á fjóra landsleiki að baki með yngri landsliðum Brasilíu.