Rashford um framtíðina: Vildi klára þetta fyrir HM

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Enski landsliðsmaðurinn Marcus Rashford segist ekki vera að hugsa um framtíð sína á meðan hann spilar á heimsmeistaramótinu og viðurkennir að hann hafi viljað ganga frá þessum málum fyrir mótið.
Rashford eyddi síðustu leiktíð á láni hjá Barcelona frá Manchester United.
Hann stóð sig vel hjá spænska félaginu, en Barcelona ákvað að virkja ekki kaupákvæðið í samningnum og keypti frekar Anthony Gordon frá Newcastle United.
Rashford mun því snúa aftur til United eftir HM.
„Ég lifi í núinu. Ég var mjög skýr við alla aðila um að ég vildi klára þetta fyrir HM og ef það gengi ekki eftir, þá myndi ég ekki gera það fyrr en eftir mótið.“
„Ég vil setja alla mína einbeitingu á það sem ég er að gera núna. Við erum að reyna að gera eitthvað sérstakt og ég hef ekki orkuna til að hugsa um eitthvað annað,“ sagði Rashford.