Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 04. ágúst 2022 21:39
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arnar Gunnlaugs: Bestu úrslit liðsins síðustu fjögur ár
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkings sat fyrir svörum á blaðamannafundi eftir sigur liðsins á Lech Poznan frá Póllandi í Fossvogi í kvöld.


,Víkingur átti mjög góðan leik en Ari Sigurpálsson skoraði eina mark leiksins.

,Það er erfitt að vera ósáttur við 1-0 sigur á móti svona góðu liði. Miðað við hvernig leikurinn þróaðist þá fengum við fleiri færi til að skora. Við vorum að kljást við mjög sterkt lið þannig að ég sætti mig við 1-0," sagði Arnar.

„Leikmenn sýndu mikið hjarta og hugrekki í dag. Ég er gríðarlega ánægður með strákana og sigurinn."

Pólskur fjölmiðlamaður spurði Arnar hvort þetta væru bestu úrslit liðsins síðustu vikur. Arnar fór enn lengra með það.

„Þetta eru bestu úrslit sem við höfum náð síðustu fjögur ár. Við höfum unnið bikarinn tvisvar og deildina í fyrra. Maður spilar ekki við svona andstæðinga á hverjum degi hér á Íslandi. Við þurftum að eiga fullkominn leik til að vinna og við gerðum það," sagði Arnar.


Athugasemdir
banner
banner
banner