25.09.26 - 12:12
Elvar Geir Magnússon
Fyrstur leikmanna til að stíga fram og segja að það eigi ekki að spila

Jason Knight í leik með Írlandi.

Mynd: EPA

John O'Shea og Heimir Hallgrímsson.

Mynd: EPA

Jason Knight í leik með Írlandi.

Mynd: EPA
Jason Knight er fyrsti leikmaðurinn í írska landsliðshópnum sem stígur fram og segist vera mótfallinn því að komandi leikir gegn Ísrael í Þjóðadeildinni séu spilaðir.
Írland, undir stjórn Heimis Hallgrímssonar, mun á sunnudag leika gríðarlega umdeildan leik gegn Ísrael í Þjóðadeildinni. Leikið verður á hlutlausum velli í Debrecen í Ungverjalandi og engir miðar seldir til írskra stuðningsmanna.
Á Írlandi hafa margir kallað eftir því að Írland sniðgangi komandi leiki við Ísrael en liðin mætast aftur 4. október og þá aftur á hlutlausum velli. Skráður heimaleikur Írlands verður spilaður í bænum Backa Topola í Serbíu.

TENGT EFNI
Heimir svekktur: Ég er ekki sálfræðingur
Um leið og Írland og Ísrael drógust saman í febrúar var þrýst á írska fótboltasambandið að sniðganga leikina vegna hernaðaraðgerða Ísraela á Gaza-svæðinu. Þau mótmæli hafa síðan magnast eftir því sem nær hefur dregið leikjunum.
„Þetta er erfið staða. Þjálfarinn hefur tjáð sig skýrt um þetta. Mér finnst að þessir leikir eigi ekki að fara fram, en þeir gera það samt. Ég er nokkuð reynslumikill en enginn okkar hefur áður verið í svona aðstæðum. Við leikmenn höfum rætt þetta okkar á milli en maður reynir eins og maður getur að einbeita sér að fótboltanum," segir Knight sem spilar fyrir Bristol City í ensku B-deildinni.
Írland tapaði 1-0 fyrir Kósovó í gær og írskir fjölmiðlar telja líklegt að öll umræðan um komandi leiki gegn Ísrael hafi haft truflandi áhrif.