Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 04. ágúst 2022 12:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bestur í 2. deild: Austfirðingar réðu ekkert við hann
Ólafur Darri Sigurjónsson (Haukar)
Ólafur Darri í leik með Haukum.
Ólafur Darri í leik með Haukum.
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Ólafur Darri Sigurjónsson er leikmaður 12. umferðar í 2. deild karla. Hann skoraði þrennu í öflugum útisigri gegn KFA, 1-5.

Um er að ræða virkilega efnilegan leikmann sem er fæddur árið 2005.

„Austfirðingar réðu ekkert við hann í þessum leik," sagði Sverrir Mar Smárason í Ástríðunni.

„Þetta var erfitt val því Kristófer Dan kom til greina líka. Hann er vel að þessu kominn, 17 ára strákur sem er að fá tækifæri í meistaraflokki. Hann grípur tækifærið," sagði Óskar Smári Haraldsson.

Fyrri leikmenn umferðarinnar:
1. umferð - Matthew Woo Ling (Dalvík/Reynir)
2. umferð - Ante Marcic (Kormákur/Hvöt)
3. umferð - Arnar Laufdal Arnarsson (Augnablik)
4. umferð - Jóhann Þór Arnarsson (Víðir)
5. umferð - Robertas Freidgeimas (Sindri)
6. umferð - Arnar Sigþórsson (ÍH)
7. umferð - Arnar Sigþórsson (ÍH)
8. umferð - Ingvi Rafn Ingvarsson (Kormákur/Hvöt)
9. umferð - Nökkvi Egilsson (Augnablik)
10. umferð - Hermann Þór Ragnarsson (Sindri)
11. umferð - Ásgeir Elíasson (KFS)
Ástríðan - 2. deildar special - 13. og 14. umferð
Athugasemdir
banner
banner