Fotbolti.net
04.08.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spænski boltinn

Ferran Torres: Verða að sýna mér að þeir elski mig

Ferran Torres: Verða að sýna mér að þeir elski mig
Canon

Mynd: EPA

Ferran Torres, leikmaður Barcelona, hefur verið sterklega orðaður við PSG að undanförnu.

Hann hefur rætt mjög opinskátt um orðróminn og er mjög stoltur af áhuga Evrópumeistaranna.
„Það er alltaf gott að þessi lið vilji mann. En ég er á samning hjá Barcelona. Það er satt að maður veit aldrei hvað gerist í fótbolta, en það góða er að ég er á samning hjá Barcelona og þetta er í mínum höndum," sagði Torres.

Hann var spurður að því hvað Barcelona þarf að gera til að halda honum hjá félaginu.

„Þeir verða að sýna mér að þeir elski mig og þeir koma til að semja og við getum rætt saman."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.