04.08.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fékk líflátshótanir eftir njósnamálið - „Ekkert þjálfaranámskeið undirbýr þig fyrir þetta"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Tonda Eckert, stjóri Southampton, segir að hann hafi fengið líflátshótanir og að lögreglan hafi sagt honum að aka ekki lengur eftir njósnamálið í Southampton á síðustu leiktíð.

TENGT EFNI
Eckert ákærður vegna njósnamálsins
Southampton var rekið úr Championship-umspilinu eftir að hafa viðurkennt að hafa njósnað um andstæðinga sína. Liðið mun hefja næsta tímabil með fjögur mínusstig. Eckert bíður enn eftir niðurstöðu í ákæru frá enska fótboltasambandinu.
Stjórn Southampton stendur við bakið á honum þrátt fyrir að hann gæti átt yfir höfði sér langt bann. Hann ræddi við þýska miðilinn Kicker um líflátshótanir sem hann fékk í kjölfar málsins.
„Það var ekki hægt að takast á við þetta án lögreglunnar lengur. Ég vil ekki fara út í smáatriði en mér var ráðlagt að keyra ekki sjálfur, ég ætti að sitja í aftursætinu í staðinn. Það var mjög erfitt," sagði Eckert.
„Þetta var staða sem ekkert þjálfaranámskeið undirbýr þig fyrir. Engin þjálfun útskýrir hvernig á að bregðast við þegar þú átt skyndilega að sitja í aftursætinu af öryggisástæðum. Eins og ég sagði, þetta var mjög erfitt.“