Fotbolti.net
03.08.26 - 20:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Garcia og Palacios frá Real Madrid til Fulham (Staðfest)

Gonzalo Garcia

Gonzalo Garcia

Canon

Mynd: Fulham

Fulham hefur staðfest komu Gonzalo Garcia og Cesara Palacios frá Real Madrid.

Gonzalo Garcia er 22 ára spænskur framherji en hann var markahæstur á HM félagsliða síðasta sumar. Hann skrifar undir fimm ára samning með möguleika á framlengingu á ári til viðbótar.
Palacios er 21 árs miðjumaður. Hann spilaði sína fyrstu leiki fyrir Real Madrid á síðasta tímabili. Hann kom alls við sögu í sjö leikjum.

Alvaro Arbeloa, stjóri Fulham, þekkir þá mjög vel en hann vann með þeim hjá Real Madrid á síðustu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.