Fotbolti.net
04.09.26 - 09:57
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Everton hafnaði risatilboði frá Chelsea undir lok gluggans

Everton hafnaði risatilboði frá Chelsea undir lok gluggans
Canon

Mynd: EPA

Chelsea ætlaði sér að kaupa miðjumann undir lok félagaskiptagluggans þegar ljóst varð að Enzo Fernandez færi til Manchester City.

Félagið reyndi við Lamine Camara hjá Mónakó en án árangurs. Enska félagið reyndi einnig við James Garner, enskan miðjumann Everton, en það gekk ekk heldur og enginn miðjumaður kom á lokadeginum.

TalkSPORT hefur heimildir fyrir því að 65 milljóna punda tilboði Chelsea hafi verið hafnað undir lok gluggans.
Garner er 25 ára, átti mjög gott tímabil með Everton og leysti m.a. hægri bakvarðarstöðuna vel. Hann kom til Everton frá Man Utd 2022.

Garner er sagður ánægður hjá Everton. Fyrr á þessu ári lék hann sína fyrstu tvo A-landsleiki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.